Allt stefnir í allsherjarverkfall á mánudag 22. september 2011 03:15 Félagsráðgjafar Reykjavíkurborgar eru 108 talsins. fréttablaðið/stefán
Félagsráðgjafar funduðu með fulltrúum frá Reykjavíkurborg hjá Ríkissáttasemjara í gær. Fundinum lauk upp úr hádegi án árangurs og er annar boðaður klukkan tvö í dag. Félagsráðgjafar fara fram á 38 prósenta launahækkun. Fyrir fundinn, sem hófst klukkan 10.30 í gærmorgun, var ákveðið að taka ekki tilboði borgarinnar, sem hljóðaði upp á 10 prósenta hækkun. Allt stefnir því í allsherjarverkfall á mánudag. Félagsráðgjafar sem starfa hjá Reykjavíkurborg eru 108 talsins. Þeir starfa flestir hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar, barnavernd og á skrifstofu velferðarsviðs. Ljóst þykir að verkfall muni raska starfsemi á þeim stöðum verulega. Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, segir verkfallið munu hafa miklar afleiðingar fyrir marga og þá helst undirmálsfólkið í samfélaginu. „Við erum að berjast fyrir jafnrétti innan borgarinnar og erum langeygar eftir kjarabótum og að starf okkar verði metið til jafns við aðrar starfsstéttir," segir Edda. „Fyrir um fimm árum var ákveðið að fara í starfsmat hjá borginni og þar var okkur sagt að þar væri möguleikinn á að hækka í launum. Það hefur ekki gerst." Edda bendir á að til samanburðar megi geta þess að samkvæmt kjarakönnun frá árinu 2010 voru verkfræðingar hjá Reykjavíkurborg með 499 þúsund krónur að meðaltali í föst mánaðarlaun og tæknifræðingar með 465 þúsund krónur. Ofan á það bættist svo yfirvinna. Til viðmiðunar megi taka dæmi af heildarlaunum 55 ára félagsráðgjafa með 20 ára starfsreynslu sem voru í febrúar í fyrra 357 þúsund krónur og séu enn þá óbreytt.- sv
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira