Vilja að ekkert skyggi á kirkjuna í Skálholti 22. september 2011 04:00 Verið er að endurbyggja nýja Þorláksbúð á rústum þeirra gömlu. Deilt er um staðarvalið fyrir nýbygginguna.
Afkomendur Harðar Bjarnasonar, fyrrum húsameistara ríkisins og hönnuður Skálholtskirkju, eru ósáttir við gerð svonefndrar Þorláksbúðar í nágrenni kirkjunnar og segja ekkert samráð hafa verið haft við sig vegna málsins. Veggir að Þorláksbúð hafa verið hlaðnir ofan á fornum tóftum, en framkvæmdir hafa staðið frá því í fyrrasumar. Enn á eftir að setja upp tréverk fyrir framhlið og þak, en til stendur að ljúka þeim framkvæmdum í næstu viku. Skálholtskirkja var vígð 1963, en börn Harðar, Áslaug og Hörður, eru nú að honum liðnum handhafar höfundarréttar kirkjubyggingarinnar. Áslaugsegir í samtali við Fréttablaðið að ekkert samráð hafi verið haft við hana og bróður hennar. Þau vilji alls ekki að Þorláksbúð rísi á þessum stað þar sem um tilfinningamál sé að ræða og nýbyggingin muni skaða ásýnd kirkjunnar. „Faðir okkar og Sigurbjörn heitinn biskup voru prímus mótorar í byggingu kirkjunnar. Þeir hefðu viljað að umhverfi hennar fengi að halda sér og ekkert myndi skyggja á kirkjuna," sagði Áslaug. „Við höfum ekkert á móti því að Þorláksbúð verði byggð, en þá mætti byggja hana annars staðar á svæðinu." Vegna þessa ósættis var málið tekið upp í kirkjuráði og var fjallað um það á fundi í gær. Talsmenn kirkjunnar vildu ekki tjá sig um málið eða afgreiðslu þess eftir fundinn. Kristján Valur Ingólfsson, nývígður vígslubiskup í Skálholti, sagði í viðtali við Stöð 2 fyrir nokkru að hann væri þeirrar skoðunar að bíða ætti með að taka ákvörðun um framhaldið þar til að öll óvissa um hvort farið hafi verið eftir reglum væri úr sögunni. „Þetta er ansi seint í rassinn gripið," segir Árni Johnsen, sem er einn af forvígismönnum verkefnisins. „Staðsetningin er einfaldlega á rústum gömlu Þorláksbúðarinnar. Staðarvalið var ákveðið með deiliskipulagi árið 1996 og þá bárust engin andmæli. Þetta var allt unnið faglega en það er augsýnilega búið að egna þetta fólk upp á lokastigi framkvæmdarinnar. Smíðinni lýkur í næstu viku." Árni kvaðst ekki vilja tjá sig um hugsanlegan rétt erfingja hönnuðar Skálholtskirkju. „En það getur varla verið að þeim hafi verið ætlað um aldur og ævi að ráða því hvað verður gert í Skálholti," segir Árni sem kveður nýja húsið vera lítið og fallegt. „Við teljum að þegar þetta er komið í höfn vildu allir Lilju kveðið hafa." thorgils@frettabladid.is gar@frettabladid.is
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira