Innlent

Vill að Hringbrautin verði Þórbergsstræti

Samkvæmt tillögu sem nú er til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum borgarinnar yrði nafni Hringbrautar vestur af Melatorgi breytt í Þórbergsstræti.
Samkvæmt tillögu sem nú er til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum borgarinnar yrði nafni Hringbrautar vestur af Melatorgi breytt í Þórbergsstræti. Fréttablaðið/Samsett mynd
„Þannig er mál með vexti að ég er með bón til þín að handan," segir í bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra frá manni sem kveðst vera „skyggnigáfumaður" og leggur til að nafni Hringbrautar vestan Melatorgs verði breytt í Þórbergsstræti.

Bréfritarinn kveðst hafa verið að ganga framhjá þar sem Þórbergur Þórðarson skáld bjó á Hringbraut þegar honum barst bæn um að nafni götunnar yrði breytt í Þórbergsstræti. Þórbergur, sem lést árið 1974, hafði í lifanda lífi mikinn áhuga á veröldinni eftir jarðlífið.

„Ég hef verið í beinu sambandi við Þórberg og hugsað þetta. Eins og við höfum verið að vinna saman þá væri hugmyndin sú frá hringtorginu tæki gatan nafnið Þórbergsstræti," útskýrir skyggnigáfumaðurinn og bendir á að borgarstjórinn sé einmitt opinn fyrir breytingum á götuheitum. „Ég vona að þú takir vel í þessa hugmynd hjá okkur félögunum," undirstrikar hann.

Borgarstjóri sendi erindið til skipulagsstjóra. „Mér líst vel á að nefna götur eftir fólki og að nota heitin stræti og götur. En ég er hikandi við að breyta nafni gamalgróinnar götu eins og Hringbrautarinnar," segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs.

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, sem skrifaði BA-ritgerð um Þórberg og vinnur nú að útgáfu bókar um sendibréf til Þórbergs, segir að sér lítist afar vel á hugmyndina um nafnabreytinguna.

„Mér finnst þetta mjög góð hugmynd og ég styð hana. Bæði bjó Þórbergur á Hringbraut 45 og gekk mikið á hverjum einasta degi og jafnvel oft á dag um þessar götur. Ef það á að hampa einhverjum eftir dauðann þá finnst mér mjög viðeigandi að það sé Þórbergur – og nafnið er fallegt líka," segir Þórunn sem aðspurð kveður Þórberg aldrei hafa gefið andaheiminn upp á bátinn.

„Mér finnst það hins vegar ekki líkt Þórbergi að vilja einhverjar vegtyllur eftir dauðann og trúi því nú eiginlega ekki að hann sé að nota tímann þarna hinumegin til þess að reyna að fá einhverjar götur nefndar í höfuðið á sér. Ég held að Þórbergur sé kominn lengra og sé að stússa í einhverju öðru – hann er að minnsta kosti ekki að hugsa um götuheiti í Reykjavík," segir Þórunn Hrefna.

gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×