Valinn úr níu þúsundum í sænska Survivor 14. september 2011 16:30 Hjálmtýr á ströndinni í Robinson „
Ég vissi að þetta ævintýri yrði svakalega erfitt, krefjandi og skemmtilegt,“ segir hinn 22 ára Hjálmtýr Daregård, um þátttöku sína í raunveruleikaþættinum Robinson, sem er sænskur Survivor-þáttur. Hann var einn af tuttugu sem valdir voru úr 9000 manna hópi. Efnið var tekið upp á Filippseyjum, nú í vor. Hjálmtýr segir hungrið hafa verið hvað erfiðast enda léttist hann um tíu kíló á þremur og hálfri viku. „Þegar ég sá mig í spegli á eftir þekkti ég varla sjálfan mig,“ segir Hjálmtýr sem einnig þurfti að leysa ýmsar magnaðar þrautir innan um eitraða snáka, sporðdreka, banvænar marglyttur, moskítóflugur, skriðdýr og fleira kvikt. Hjálmtýr er hálf sænskur og hálf íslenskur og hefur búið í löndunum til skiptis. Nú er hann í Svíþjóð og stundar nám við Viðskiptaháskólann í Stokkhólmi, auk þess að starfa við byggingarfyrirtæki fjölskyldunnar. Hann er að skrifa bók, undirbúa Íslandsferð í vetur með 50 manna hóp, og góðgerðastarf í Afríku er á dagskránni. „Èg er mjög stoltur af að vera íslenskur og kem í heimsókn þrisvar til fimm sinnum á hverju ári,“ segir hann. Þetta er fjórtánda árið sem Robinson er á dagskrá. Alls fylgdust 1,3 milljónir með fyrsta þættinum þetta haustið. Næsti þáttur er annað kvöld, fimmtudag, klukkan 20 að sænskum tíma á TV4, sem er opin stöð. Einnig er hægt að nálgast þáttinn á síðunni tv4play.se/noje/robinson. gun@frettabladid.is
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sjá meira