Heimsmeistari og leikari í dómarasætinu 9. september 2011 08:00 Frumraun í sjónvarpi Karen Björk Björgvinsdóttir er ein af dómaratríóinu í nýjum dansþætti á RÚV. Hún er fyrrverandi heimsmeistari í samkvæmisdönsum. Fréttablaðið/valli „
Ég var strax mjög spennt fyrir þessu og það er gaman að vera með," segir Karen Björk Björgvinsdóttir dansþjálfari, en hún þreytir frumraun sína í sjónvarpi þegar hún sest í dómarasætið í nýjum dansþætti á RÚV. Karen Björk verður hluti af dómaratríói sem einnig er skipað Katrínu Hall og Gunnari Helgasyni leikara. Auk þeirra þriggja verður fenginn einn gestadómari til liðs við þau í hverjum þætti, en þættirnir fara í loftið í október. „Við erum mjög ánægð með þetta dómaratríó, tvær fagmanneskjur og svo er Gunnar fenginn inn sem rödd áhorfandans. Mér skilst reyndar að hann sé lunkinn dansari en hann er líka vanur því að halda áheyrnarprufur," segir Þór Freysson hjá Saga Film, sem sér um að framleiða þættina fyrir RÚV. Karen var heimsmeistari í samkvæmisdönsum árið 2003 en hún hefur nú lagt keppnisskóna á hilluna og snúið sér alfarið að þjálfun. „Það er auðvitað smá fiðringur í manni fyrir fyrsta þáttinn en annars er ég öllu vön. Þegar við vorum að keppa fylgdi því að vera í fjölmiðlum. Nú verður þetta bara gaman og ég ætla að vera hreinskilinn dómari." Karen er handviss um að þátturinn eigi eftir að hafa góð áhrif á dansmenninguna enda aragrúi af efnilegu dansfólki á landinu. „Ég ætla að mæla eindregið með þátttöku við alla mína nemendur enda tilvalið til að koma sér og listinni á framfæri." Skráning í prufurnar, sem fara fram 1. og 2. október, hófst í dag en hún fer fram á vefsíðu Ríkissjónvarpsins, ruv.is. Sigurvegari þáttanna fær eina milljón króna í verðlaun. - áp
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Sjá meira