Skagastrákur stelur senunni í Bon Iver-myndbandi 22. ágúst 2011 10:30 „
Þetta var bara mjög gaman og ekkert svo erfitt," segir hinn sjö ára gamli Skagapiltur Helgi Rúnar Bjarnason. Helgi Rúnar þykir hafa stolið senunni í Bon Iver-myndbandi sem frumsýnt var á National Geographic-vefsíðunni á fimmtudag. Þar sést Helgi á röltinu um helstu náttúruperlur Íslands undir laginu Holocene sem finna má á nýjustu plötu indí-rokksveitarinnar. Myndbandið hefur vakið mikla athygli á netinu og um það hefur verið fjallað á helstu tónlistarsíðum heims, meðal annars heimasíðu Billboard-listans, Entertainment Weekly og Spin Magazine. Í gær höfðu 117 þúsund horft á myndbandið en því er leikstýrt af leikstjóranum Nabil sem hefur meðal annars unnið með rappstjörnunni Kanye West. Helgi Rúnar leikur ekkert síður stórt hlutverk en íslenskar náttúruperlur á borð við Jökulsárlón, Svartafoss og Breiðamerkursand í myndbandinu. Og honum finnst bara nokkuð skemmtilegt hversu mikla athygli myndbandið hefur fengið. Hann hefur þegar sýnt vinum sínum það og þeim þótti töluvert til þess koma og að hans sögn voru þeir bara sáttir með frammistöðu hans fyrir framan tökuvélarnar. Sjálfur segist Helgi alveg geta hugsað sér að verða leikari en hann hafði ekki mikinn tíma fyrir spjall, hann var úti að leika sér. Móðir Helga, Ingibjörg Kristín Barðadóttir, segir tökurnar hafa verið mikið ævintýri því þau hafi verið stödd fyrir austan þegar brúin yfir Múlakvísl fór. Þau hafi því þurft að leggja á sig sjö tíma ferðalag aftur heim um Fjallabaksleið nyrðri. „Leikstjóranum fannst það hins vegar skemmtilegast og mér sýnist stærsti hlutinn af myndbandinu hafa verið tekinn þar. Við vorum allavega alltaf að stoppa og taka eitthvað upp." Ingibjörg bætir því við að hún hafi ekki átt von á því að myndbandið myndi hljóta svona mikla athygli og raun ber vitni. „Við vissum í raun ekkert hver þessi Bon Iver var og datt aldrei í hug að þetta myndi vinda svona upp á sig." freyrgigja@frettabladid.is
Tengdar fréttir Íslandsmyndband Bon Iver frumsýnt Íslandsmyndband indí-rokkarans Bon Iver við lagið Holocene var frumsýnt á heimasíðu National Geographic í gær. Myndbandinu er leikstýrt af Nabil Elderkin, sem hefur unnið mikið með rappofurstjörnunni Kanye West. Fjallað var um myndbandið á vefsíðu pitchfork.com í gær en það hefur þegar vakið mikla athygli. 19. ágúst 2011 10:00 Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Fleiri fréttir „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Sjá meira
Íslandsmyndband Bon Iver frumsýnt Íslandsmyndband indí-rokkarans Bon Iver við lagið Holocene var frumsýnt á heimasíðu National Geographic í gær. Myndbandinu er leikstýrt af Nabil Elderkin, sem hefur unnið mikið með rappofurstjörnunni Kanye West. Fjallað var um myndbandið á vefsíðu pitchfork.com í gær en það hefur þegar vakið mikla athygli. 19. ágúst 2011 10:00