Sigurjón með De Niro til Toronto 17. ágúst 2011 12:00 Sigurjón Sighvatsson verður í góðum félagsskap í september þegar kvikmyndin Killer Elite verður frumsýnd í Kanada. „
Þetta er dýrasta óháða kvikmyndin í Bandaríkjunum árið 2010, hún kostaði 65 milljónir dala," segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi. Kvikmynd hans, Killer Elite, hefur verið valin inn á kvikmyndahátíðina í Toronto þar sem hún verður frumsýnd 10. september í svokölluðum gala-flokki. Myndin hefur verið Sigurjóni mikið hjartans mál en hún byggir á bók sérsveitarmannsins Sir Ranulph Fiennes sem kom út 1993. Hún olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma þar sem í henni var meðal annars ljóstrað upp um tilvist SAS-sérsveitanna, en bresk stjórnvöld höfðu alla tíð neitað að staðfesta að þær væru til. Myndin segir frá því þegar liðsmenn SAS-sérsveitanna eru hundeltir af leigumorðingjum og skartar stórleikurum á borð við Clive Owen, Jason Statham og Robert De Niro í aðalhlutverkunum. Sigurjón verður á miklu flandri í september því að lokinni frumsýningu í Kanada verður stór og mikil frumsýning í New York að viðstöddum öllum helstu stjörnunum 14. september. „Og svo verður farið í alla helstu spjallþættina, Leno og Letterman." Myndin verður frumsýnd á Íslandi 7. október næstkomandi. - fgg
Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Ekki vottur af vöðvabólgu Lífið Fleiri fréttir Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Sjá meira