Kreppan bjargaði bátasmið í Brákarey 5. ágúst 2011 08:00 Bátasmiðirnir María Sigurjónsdóttir og Steinn Máni Árnason sem hér standa í stafni geta nú einhent sér í smíðarnar því deilunni við bæjaryfirvöld er lokið. Mynd/jón sigurður
Kreppan og samkomulag Borgarbyggðar við Orkuveitu Reykjavíkur hafa bjargað Þorsteini Mána Árnasyni frá hrakhólum með 30 tonna bát sinn sem hann er að smíða í húsnæði Borgarbyggðar. Eftir margra ára deilur fær hann nú að hafast þarna við áfram í sátt við guð og menn. Forsaga málsins er sú að Þorsteini Mána var uppálagt að yfirgefa húsið, sem er á Brákarey, árið 2009 en þá átti að rífa það. Ein ástæða þess var að stækka átti hreinsistöð sem er þar skammt frá, en lögn frá henni liggur meðfram húsinu. Eins var Borgarbyggð með tilbúið deiliskipulag þar sem ráðgert var að endurskipuleggja svæðið á Brákarey. Báturinn er ekki enn orðinn sjófær, svo að Þorsteinn Máni hefði orðið fyrir verulegu tjóni hefði hann þurft að flytja hann á brott. Auk þess var hann óviss um að geta staðið straum af slíkum flutningum, þannig að smíðin var í uppnámi. Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segir að ákveðið hafi verið í vor að hverfa frá þessum hugmyndum. „Í fyrsta lagi náðum við fram lausn með Orkuveitunni um að gera þessa stækkun án þess að rífa skemmuna, reyndar með nokkrum aukakostnaði, en síðan höfum við ákveðið að nota þessi hús á Brákarey í atvinnuuppbyggingu,“ segir Páll. Hann segir enn fremur að allar forsendur séu brostnar fyrir því deiliskipulagi á Brákarey sem gert hafi verið fyrir bankahrun. Hann segir jafnframt að þessi lausn hafi þó verið nokkuð umdeild í Borgarbyggð. Spurður hvort búið hefði verið að rífa húsið ef hann hefði ekki hreyft svo kröftugum mótmælum á sínum tíma segir Þorsteinn Máni það líklegt að það hefði verið jafnað við jörðu. Hann var afar sæll þegar Fréttablaðið færði honum tíðindin en hafði þá ekki heyrt frá bæjaryfirvöldum í langan tíma. „Þá get ég farið að snúa mér að smíðunum í stað þess að þurfa að standa í þessu stappi,“ segir hann. Hann segist vonast til þess að báturinn verði sjósettur eftir eitt og hálft ár. „Þá verður Páli Brynjarssyni boðið í jómfrúarsiglinguna, hann getur staðið í stafni og ég skal spila stefið úr Titanic-myndinni svo það verði stíll á þessu.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Áfall fyrir RIFF Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Sjá meira