Allir fangelsiskostir enn til athugunar 4. ágúst 2011 05:00 Aðstæður í kvennafangelsinu í Kópavogi þykja ekki boðlegar, né í fangelsinu á Skólavörðustíg. Nýtt húsnæði á meðal annars að bæta úr þeim málum. Mynd/Vilhelm
ögmundur jónasson Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvernig staðið verður að því að auka við fangelsisrými. Innanríkisráðuneytið vinnur nú úttekt á kostnaði og hagkvæmni þess að breyta ýmsum húsum ríkisins í fangelsi. Engir kostir hafa verið útilokaðir. Meðal þeirra kosta sem liggja undir eru hjúkrunarheimilið í Víðinesi, Vífilsstaðaspítali, Arnarholt og vinnubúðir við Reyðarfjörð. Í Fréttablaðinu í gær var ranghermt á málin hefðu verið rædd á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag. Hið rétta er að það var gert fyrir viku. Kostnaður liggur ekki fyrir við alla kostina en þó er ljóst að það mun kosta 1,8 milljarða króna að breyta Vífilsstöðum þannig að húsnæðið nýtist sem öryggis- og gæsluvarðhaldsfangelsi. Bygging nýs fangelsis kostar tvo milljarða króna. Umtalsverður kostnaður er við að breyta Víðinesi í fangelsi en nákvæmur kostnaður liggur ekki fyrir þar né á öðrum kostum. Sérfræðingar í innanríkisráðuneytinu telja að sú leið tefji vígslu nýs fangelsis um eitt ár, miðað við nýbyggingu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að bygging nýs fangelsis sé ódýrasti og hagkvæmasti kosturinn fyrir skattborgara. Rekstrarkostnaðurinn sé minni á slíkri byggingu en á eldra húsi. Þá segir hann sérfræðinga sem að málinu hafa komið fullyrða að það sé ekki góður kostur að breyta eldra húsnæði. „Við settum í stöðugleikasáttmálann ýmis verkefni sem eru atvinnuskapandi. Ég fullyrði að fá verkefni eru eins til þess fallin að skapa mörgum atvinnu og að reisa nýtt fangelsi." Spurður hvað dvelji ákvörðun um málið segir hann að verið sé að horfa í ríkisbudduna. Öllum steinum hafi verið velt til að finna hagkvæmustu lausnina. Enn er deilt um fjármögnun fangelsisins en Ögmundur telur að ríkissjóður eigi að standa fyrir henni. „Það hefur legið fyrir að fangelsi verður fjármagnað úr ríkissjóði, hvaða form sem verður á því. Þeir sem þar gista borga hvorki húsnæði né fæði." Ákvörðun um framkvæmdina verður tekin í þessum mánuði. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira