Þrettán milljónir ber á milli 3. ágúst 2011 06:30 Framlög skólans eru miðuð við fjórum sinnum minni skóla, að sögn stjórnenda. Ráðuneytið hefur stungið upp á því að skólinn minnki. Mynd/Anton
hilmar oddsson Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur óskað eftir að árlegt framlag ríkisins verði aukið úr 38 milljónum króna í 70. Í mars fór stjórnin fram á 140 milljón króna árlegt framlag, en hefur nú lækkað þá ósk. Ráðuneytið hefur boðið 57 milljón krónur árlega. Því hafnaði skólinn í júní. Hilmar Oddsson skólastjóri segir að starfsemi skólans geti haldið áfram, verði stjórnvöld við lágmarkskröfum um 70 milljóna króna árlegt framlag. Hann segir núverandi framlag miðað við fjórum sinnum minni skóla. Því sé ekki nema eðlilegt að það hækki í samræmi við aukin umsvif. „Við höfum skilið að ekki sé hægt að hækka framlagið til fulls miðað við ástandið og því lagt til 70 milljón króna framlag. Það munar 13 milljónum króna á okkar tillögum og ríkisins. Mun íslenska ríkið falla með þeim milljónum til Kvikmyndaskóla Íslands? Auðvitað ekki, þetta er einfaldlega pólitísk ákvörðun.“ Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmaður ráðherra, segir að ráðuneytið hafi bent á að miðað við þær tekjur sem skólinn hefur gangi reksturinn ekki upp þar sem útgjöld séu þar langt umfram. Ráðuneytið hafi velt upp þeim möguleika að skólinn verði minnkaður. Hilmar bendir á að allar ákvarðanir um stækkun skólans hafi verið teknar í samráði við stjórnvöld. „Ef það er myndin sem menn fá að við höfum verið að spila eitthvað sóló þá er það kolrangt.“ Það sé heldur engin lausn að minnka skólann um helming, með því minnkuðu tekjur hans í skólagjöldum. Skólagjöldin séu komin að sársaukamörkum fyrir nemendur og ekki hægt að hækka þau, en þau hafa ekki hækkað síðan 2003. Þá sé ósanngjarnt að minnka námsframboð skólans á miðri önn, eftir að nemendur hafi fjárfest í dýru námi með ákveðna námskrá í huga. Í fréttatilkynningu sem stjórnin sendi frá sér í gær var það gagnrýnt að Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarráðherra, hefði ekki gengið frá samningum við skólann áður en hún fór í barneignarleyfi. Katrín segist lítt skilja þessa gagnrýni. „Þá stóðu yfir viðræður sem var ekki lokið. Ég gat því miður ekki frestað fæðingarorlofinu,“ segir Katrín, en vísar að öðru leyti til starfandi ráðherra, Svandísar Svavarsdóttur. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar. Mikill niðurskurður hefur átt sér stað í menntamálum á síðustu árum. Á síðasta ári var framlag til háskólastigs skorið niður um 10 prósent og um 15 prósent til framhaldsskólastigs. Hilmar bendir hins vegar á að skólinn hafi verið undirfjármagnaður í mörg ár. Stjórnendur Kvikmyndaskólans og fulltrúar menntamálaráðuneytisins munu funda um málefni skólans í dag. kolbeinn@frettabladid.iskatrín jakobsdóttir
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira