Langisjór og hluti af Eldgjá friðlýst 30. júlí 2011 08:00 Svandís Svavarsdóttir. Mynd/GVA
Langisjór og hluti af Eldgjá og nágrenni hafa nú verið friðlýst og hefur Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra gefið út reglugerð þar um. Umhverfisráðuneytið og sveitarstjórn Skaftárhrepps gengu frá samkomulagi um gjörðina. Innan þessara svæða eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu. Að auki hefur svæðið mikið útivistar-, fræðslu- og vísindagildi. Friðlýsingin er liður í stækkun þjóðgarðsins, um 420 ferkílómetra, sem er á náttúruverndaráætlun 2009 til 2013. Stækkunin tekur til tveggja svæða. Annars vegar svæðis sem kennt er við Langasjó og Tungnárfjöll. Þar er að finna víðerni og einstakar jarðmyndanir sem tengjast eldvirkni á löngum gossprungum. Meðal þeirra eru Grænifjallagarður og Fögrufjöll, sem mynduðust við gos undir jökli á ísöld. Eldgjá er þar einnig, en þar varð mikið hraungos árið 934. Langisjór er eitt stærsta ósnortna stöðuvatn á hálendi landsins, en það er um 25 ferkílómetrar. Stækkunin nær einnig til efsta hluta Skaftár og Skaftáreldahrauns, norðvestan Lakagíga, en þeir eru þegar friðlýstir. Hitt svæðið sem stækkunin nær til er efsti hluti Skaftáreldahrauns suðaustan Lakagíga. Þar er að finna afar sjaldgæfa vistgerð á hálendinu.- kóp
Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira