Lífið

Nærbuxum Greifanna stolið

Greifarnir hafa löngum hengt upp risavaxnar nærbuxur til þess að kynna komandi tónleika. Þeir voru búnir að hengja upp glænýjar brækur fyrir framan SPOT í Kópavogi, en brókunum var stolið aðfaranótt þriðjudags.
Greifarnir hafa löngum hengt upp risavaxnar nærbuxur til þess að kynna komandi tónleika. Þeir voru búnir að hengja upp glænýjar brækur fyrir framan SPOT í Kópavogi, en brókunum var stolið aðfaranótt þriðjudags.
Sárt Viddi í Greifunum grætur brækurnar risavöxnu.
„Nú er maður bara nærbuxnalaus,“ segir Kristján Viðar Haraldsson, betur þekktur sem Viddi í Greifunum, en nærbuxum þeirra var stolið fyrir utan skemmtistaðinn SPOT í Kópavogi. Um er að ræða risavaxnar nærbuxur sem hengdar voru upp í auglýsingaskyni, en Greifarnir halda útihátíð á skemmtistaðnum um verslunarmannahelgina ásamt Sigga Hlö og Hvanndalsbræðrum. „Brækurnar voru komnar upp og áttu að auglýsa tónleikana, en einhver óprúttinn hefur bara tekið þær ófrjálsri hendi,“ segir Viddi, og bætir við að nærbuxurnar séu aðeins vikugamlar.

Saga nærbuxnanna nær þó lengra en viku aftur í tímann, en fyrstu nærbuxur Greifanna voru gerðar fyrir 27 árum. „Þetta byrjaði allt árið 1984 þegar við komum í fyrsta skipti fram í bíóinu á Húsavík. Móðir mín saumaði handa okkur risanærbuxur sem á stóð Special Treatment, eins og við hétum í byrjun, en þetta reyndist frábært auglýsingatrikk því við fylltum bíóið,“ segir Viddi. „Seinna létum við gera nærbuxur sem á stóð „Greifarnir“ og þær hafa fylgt okkur í gegnum tíðina. Það var samt kominn tími til að gera nýjar og þær fengum við fyrir viku. Þær fóru fyrst upp á Mærudögum á Húsavík um síðustu helgi, en svo er þeim bara stolið núna,“ segir Viddi, en brækurnar voru hengdar upp á mánudag.

Viddi segir það líklegast að einhver sé að gera at í þeim Greifum. Ætli þetta sé einhver rosaleg grúppía? „Hún er þá allavega hrikalega stór,“ segir Viddi og hlær, en nærbuxurnar eru 3,80 metrar á breidd. Hann vonast til að endurheimta nærhaldið en segir þetta mál þó hið alvarlegasta. „Þetta er háalvarlegt mál, þó svo að ég sjái húmorinn í þessu líka.“

-ka






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.