Nærbuxum Greifanna stolið 27. júlí 2011 13:15 Greifarnir hafa löngum hengt upp risavaxnar nærbuxur til þess að kynna komandi tónleika. Þeir voru búnir að hengja upp glænýjar brækur fyrir framan SPOT í Kópavogi, en brókunum var stolið aðfaranótt þriðjudags.
Sárt Viddi í Greifunum grætur brækurnar risavöxnu. „Nú er maður bara nærbuxnalaus,“ segir Kristján Viðar Haraldsson, betur þekktur sem Viddi í Greifunum, en nærbuxum þeirra var stolið fyrir utan skemmtistaðinn SPOT í Kópavogi. Um er að ræða risavaxnar nærbuxur sem hengdar voru upp í auglýsingaskyni, en Greifarnir halda útihátíð á skemmtistaðnum um verslunarmannahelgina ásamt Sigga Hlö og Hvanndalsbræðrum. „Brækurnar voru komnar upp og áttu að auglýsa tónleikana, en einhver óprúttinn hefur bara tekið þær ófrjálsri hendi,“ segir Viddi, og bætir við að nærbuxurnar séu aðeins vikugamlar. Saga nærbuxnanna nær þó lengra en viku aftur í tímann, en fyrstu nærbuxur Greifanna voru gerðar fyrir 27 árum. „Þetta byrjaði allt árið 1984 þegar við komum í fyrsta skipti fram í bíóinu á Húsavík. Móðir mín saumaði handa okkur risanærbuxur sem á stóð Special Treatment, eins og við hétum í byrjun, en þetta reyndist frábært auglýsingatrikk því við fylltum bíóið,“ segir Viddi. „Seinna létum við gera nærbuxur sem á stóð „Greifarnir“ og þær hafa fylgt okkur í gegnum tíðina. Það var samt kominn tími til að gera nýjar og þær fengum við fyrir viku. Þær fóru fyrst upp á Mærudögum á Húsavík um síðustu helgi, en svo er þeim bara stolið núna,“ segir Viddi, en brækurnar voru hengdar upp á mánudag. Viddi segir það líklegast að einhver sé að gera at í þeim Greifum. Ætli þetta sé einhver rosaleg grúppía? „Hún er þá allavega hrikalega stór,“ segir Viddi og hlær, en nærbuxurnar eru 3,80 metrar á breidd. Hann vonast til að endurheimta nærhaldið en segir þetta mál þó hið alvarlegasta. „Þetta er háalvarlegt mál, þó svo að ég sjái húmorinn í þessu líka.“ -ka
Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira