Segir tollalög andstæð stjórnarskránni 26. júlí 2011 06:30 Ákvarðanir landbúnaðarráðherra um tolla á innfluttar landbúnaðarvörur byggja á lögum sem standast ekki stjórnarskrá, segir umboðsmaður Alþingis. Mynd/Anton
Umboðsmaður Alþingis segir heimildir í tollalögum til handa landbúnaðarráðherra til að ákvarða tolla á innfluttar landbúnaðarvörur ekki vera í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar um skattlagningarheimildir. Umboðsmaður hóf skoðun á málinu eftir kvörtun frá Samtökum verslunar og þjónustu vegna þriggja reglugerða sem landbúnaðarráðuneytið setti í maí í fyrra. Þær taka til tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, á smjöri og ostum og á unnum kjötvörum og giltu tímabilið 1. júlí 2010 til 30. júní 2011, allar dagsettar 12. maí 2010. Samtökin gerðu athugasemd við að lagðir væru tollar á tollverð frekar en vörumagn vara sem fluttar væru inn. Meðal annars væri vafasamt að þetta stæðist þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands. Landbúnaðarráðuneytið svaraði því meðal annars til að Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra hafi við ákvarðanir sínar haft í huga fæðuöryggi, atvinnumál og erfiða stöðu í gjaldeyrismálum. Umboðsmaður segir að í ljósi niðurstöðu sinnar um að hin tilteknu ákvæði í tollalögum standist ekki stjórnarskrá hafi hann ekki tilefni til að fjalla um þau atriði í kvörtun Samtaka verslunar og þjónustu sem lúta að meðferð ráðherrans á valdheimildum sem lögin gefa honum. Hins vegar er því beint til landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra að bregðast við því að lögin samræmist ekki stjórnarskránni. - gar
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira