Hlutabætur verða greiddar út í ágúst 22. júlí 2011 03:00 GUÐBJARTUR HANNESSON
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra áformar að setja reglugerð sem tryggir að þeir sem átt hafa rétt á hlutabótum fái fullar greiðslur í byrjun ágúst. Ráðherra mun leggja fram drög að reglugerð á næsta ríkisstjórnarfundi. Á annað þúsund manns áttu það á hættu að fá ekki greiddar út atvinnuleysisbætur um næstu mánaðamót. Ástæðan var sú að Alþingi láðist að afgreiða lög um framlengingu á bráðabirgðaákvæðum laga um hlutabætur. Stjórn Atvinnuleysistryggingarsjóðs lagði til við velferðarráðherra að viðkomandi yrði veittur styrkur úr sjóðnum. Runólfur Ágústsson er formaður stjórnarinnar. Í samþykkt stjórnarinnar segir að „ótækt sé að mistök í störfum þingsins valdi því að umræddir einstaklingar, sem máttu treysta því að fá bætur sínar greiddar, beri með þessum hætti fjárhagslegan skaða sem bitnar á framfærslu þeirra.“ Stjórnin segir að eðlilegt hefði verið miðað við aðdraganda og stöðu málsins að ríkisstjórnin setti bráðabirgðalög til að tryggja framfærslu bótaþeganna. Það hefur ekki verið gert. Frumvarp um framlengingu bráðabirgðaákvæða um hlutabætur verður lagt fyrir Alþingi í haust um leið og þing kemur saman. Guðbjartur segist á heimasíðu ráðuneytisins reikna með því að unnt verði að greiða út bætur í september samkvæmt lögunum. Reglugerðin kveður á um styrk úr sjóðnum til þeirra sem þiggja hlutabætur. Viðkomandi sé tryggð sama fjárhæð til útborgunar 1. ágúst og ef um bætur hefði verið að ræða. Auk þess mun sjóðurinn greiða 8 prósent af styrkfjárhæð hvers og eins til lífeyrisjóðs hans.- kóp
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Sjá meira