Samþykki breytingar innan sex vikna 20. júlí 2011 07:00 Skilja verður á milli samfélagslegra og viðskiptalegra þátta Íbúðalánasjóðs samkvæmt kröfu ESA. Stofnunin hefur stytt þann frest sem stjórnvöld höfðu til tillagna um breytingar. Mynd/Vilhelm
Guðbjartur Hannesson. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum tillögur um hvernig Íbúðalánasjóði verði breytt til að laga hann að reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð. Stofnunin hafði áður veitt stjórnvöldum frest til andsvara, en hann virðist nú hafa verið styttur. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segist ekki skilja hvers vegna þessar tillögur komi nú. Stjórnvöld hafi haft frest fram til nóvember til að leggja fram áætlun um hvernig Íbúðalánasjóði yrði breytt. Hann segir þetta koma sér mjög á óvart. „Við þurfum að sjá hvað liggur að baki þessu, hvað hefur breyst." Athugasemdir stofnunarinnar byggja á dómi EFTA-dómstólsins frá 2006. Þar segir að íslenskum stjórnvöldum beri að skilgreina betur hlutverk Íbúðalánasjóðs í almannaþjónustu. Tryggja þurfi betur að ríkisaðstoð sú sem sjóðurinn nýtur sé aðeins nýtt til almannaþjónustu, ekki starfsemi af viðskiptalegum toga. Með öðrum orðum, að skilja þurfi betur á milli samkeppnislegra og félagslegra þátta. „Við þurfum að skoða betur hvernig ríkisábyrgðirnar eru og hvernig sjóðurinn fellur undir eftirlitskerfið í samanburði við banka og annað. Við höfum ýtt þessu á undan okkur á meðan við sjáum hvernig samfélagið endurreisir sig eftir bankahrunið," segir Guðbjartur. Eftirlitsstofnunin leggur til að þak verði sett á verð og stærð þess húsnæðis sem Íbúðalánasjóður lánar til. Með þessu á að koma í veg fyrir að ívilnanir tengdar félagslegri þjónustu komi viðskiptahluta starfseminnar til góða. Guðbjartur segir að málið verði skoðað og á því fundin lausn. Mikilvægt sé að viðhalda félagslegu húsnæðiskerfi. „Mikilvægi sjóðsins hefur aukist ef eitthvað er að undanförnu." Málinu er lokið af hálfu ESA samþykki íslensk stjórnvöld tillögurnar innan sex vikna. Að öðrum kosti kann að fara svo að stofnunin hefji formlega rannsókn á grundvelli aðfinnsla sinna. Guðbjartur segir að krafa um sex vikna frest núna komi sér á óvart. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira