Tún og akra þarf að vökva 20. júlí 2011 06:30 Jónatan Magnússon
Nú er svo komið að bændur eru farnir að huga að búnaði til að vökva akra og tún, segir Ægir Jóhannesson, bóndi að Jörfa í Víðidal. Víða um land er spretta með minnsta móti og að sögn Ægis gæti svo farið að það yrði enginn seinni sláttur vegna þurrka. „Kannski verður ekki nema einn sláttur hjá mörgum sauðfjárbændum í ár,“ segir hann. „Þeir slá kannski seinnipartinn í þessum mánuði og nota það sem eftir kemur sem beit á túnin í haust. Menn þurfa að sjá til og vera svolítið útsjónarsamir í þessu ástandi.“ Ægir er kúabóndi en er einnig með 30 hektara kornakur sem finnur ekki síður fyrir þurrkum. „Þetta ætti að vera farið að skríða en það bólar ekkert á því enn þá,“ segir hann. Hann segir einnig marga bændur vera farna að ræða þennan möguleika. Hann útilokar ekki að vera kominn með búnað og tæki til að vökva næsta sumar. „Ætli þetta sé ekki þriðja sumarið sem er svona verulega þurrt og maður verður bara að bregðast við þessu með einhverjum hætti. Ég hef verið að kynna mér þennan búnað og ætla að taka mér haustið til þess að gera það upp við mig.“ Á Vestfjörðum voru bændur einnig víða í vanda vegna þurrka. Þó var Jónatan Magnússon, bóndi á Hóli í Önundarfirði, ánægður með fyrri sláttinn. „Við fengum náttúrulega svo mikinn raka seinnipartinn í maí þegar það snjóaði, en síðan þá höfum við varla fengið dropa úr lofti og nú er farið að brenna á túnum þannig að ef það fer ekki að rigna þá er útlitið ekki gott fyrir seinni slátt,“ segir hann. En kýrnar á Hóli þekkja einnig annars konar skort en á rigningu. Jónatan er vanur að gefa þeim kalkþörung frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. „Það kláraðist há mér um daginn og þá leið heil vika sem þær fengu ekkert og þá byrjuðu þær strax að fá doða og urðu bara veikar og slappar,“ segir hann. jse@frettabladid.is
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira