Þurrkar tefja uppskeru sunnanlands 18. júlí 2011 06:45 Hér er Friðrik ásamt Georg Ottóssyni garðyrkjubónda á Skarði. Þurrkar valda því að kálið er ekki enn sopið þar sem annars staðar. mynd/islnekt.is
Miklir þurrkar víða í sveitum sunnanlands auk síðbúins vorhrets í lok maí valda því að uppskera garðyrkjubænda verður tíu dögum til tveimur vikum síðar í ár en undafarin ár. „Í fyrra byrjuðum við að selja kartöflur í annarri viku júlí en það verður ekki fyrr en um næstu mánaðamót sem við getum byrjað núna,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi á Skarði í Þykkvabæ. Friðrik R. Friðriksson, ræktunarstjóri hjá Jöfra á Flúðum, tekur í sama streng en þar er ræktað kál í útigörðum. „Þetta hefur ekki skemmt neitt en gerir okkur samt lífið leitt því uppskeran er tíu dögum seinni nú og við höfum bara staðið í því að vökva dag og nótt,“ segir hann. Sigurbjartur segist nú vonast eftir góðri tíð í júlí og ágúst svo uppskeran geti verið jafnmikil um sig og í fyrra. Uppskeran var góð í fyrra en þá uppskar Sigurbjartur 350 til 400 tonn. „Ég setti niður í sambærilegt land núna þannig að ef allt gengur upp á þetta að vera svipað í ár en annars er kartöflurækt eins og lottóið, maður leggur undir á vorin og svo sér maður hvernig dettur úr pottinum á haustin,“ segir Sigurbjartur. Spurður hvaða áhrif þessi seinkun hafi segir Friðrik. „Þetta styttir náttúrulega markaðstímann. Kálið sem borðað var í síðustu viku var ekki íslenskt kál.“ Hann segist nú vona að Kári verði ekki snemma á ferðinni svo að markaðstíminn styttist ekki líka í hinn endann. Íslensk veðrátta virkar greinilega ekki eftir neinni jafnaðarreglu því örlítið austar unir Ólafur Eggertsson bóndi sér vel í vætutíðinni sem ríkt hefur undir Eyjafjallajökli. „Hér er ekki vandamál með þurrk það er frekar allt of blautt,“ segir Ólafur. „Ég er satt að segja orðinn svolítið þreyttur á þessu, það gengur svo hægt hjá mér að heyja í þessari veðráttu. En ég hef svo sem ekki ástæðu til að kvarta, hér er korn og repja allt mjög fallegt, mikill heyfengur og túnin fallega græn.“ Hann segir það þekkt fyrirbæri að fjallaskúrir væti grund undir Eyjafjallajökli þegar þurrkar ríkja annars staðar á svæðinu. jse@frettabladid.is
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira