Daníel Bjarnason á næstu plötu Sigur Rósar 9. júlí 2011 20:00 Tónskáldið Daníel Bjarnason vinnur með Sigur Rós á næstu plötu sveitarinnar. Georg Holm lýsir honum sem snillingi. "
Við unnum smá verkefni með honum um daginn og það var alveg rosalega gaman, hann er algjör snillingur. Hann verður alveg pottþétt hluti af plötunni,“ segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar. Tónskáldið Daníel Bjarnason mun vinna með Sigur Rós á næstu plötu sveitarinnar. Bassaleikarinn segir meðlimi sveitarinnar hafa klárað nokkra grunna að lögum en vildi ekki staðfesta neinar tölur í þeim efnum. Fréttablaðið hafði heyrt tölunni níu fleygt fram. "Þau gætu verið fleiri og þau gætu verið færri,“ segir Georg en hann var staddur í Tyrklandi í fríi þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Sigur Rós hefur legið í dvala í dágóðan tíma enda var söngvarinn þeirra, Jón Þór Birgisson, að einbeita sér að sólóferli sínum. Georg viðurkennir að fríið hafi gert þeim gott. "Það var fínt að gera ekkert tónlistartengt í smá tíma, bara anda og hafa gaman.“ Alvara lífsins tekur hins vegar við í þarnæstu viku þegar vinna hefst að nýju. Bassaleikarinn vildi ekki gefa upp neina nákvæma dagsetningu á útgáfu þótt umboðsmennirnir væru eflaust tilbúnir með þær. Og hann boðar nýja tíma hjá Sigur Rós. "Platan verður full af leikgleði eins og á þeirri síðustu en við erum að feta nýjar slóðir, jafnvel aðrar slóðir en við höfum nokkurn tímann fetað.“ - fgg
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Sjá meira