Fæðuval þorsksins tekur breytingum 1. júlí 2011 06:00 Loðna er langmikilvægasta fæða þorsks en þar á eftir koma rækja og ljósáta. Mynd/Stefán Karlsson
Töluverðar breytingar hafa orðið á fæðu þorsks á Íslandsmiðum á síðasta aldarfjórðungi. Minnkandi stofnar loðnu og rækju undanfarin tíu til fimmtán ár hafa valdið því að meðalþyngd þorsks hefur dregist saman síðustu tíu ár. Þetta eru niðurstöður rannsókna Ólafs K. Pálssonar og Höskuldar Björnssonar, sérfræðinga hjá Hafrannsóknastofnun. Ólafur og Höskuldur birtu nýverið grein í vefútgáfu tímarits Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES Journal of Marine Science). Í greininni er fæðuvali þorsks lýst og gerð grein fyrir langtímabreytingum í áti hans frá 1981 til 2010. Hafrannsóknastofnun hefur rannsakað fæðu þorsks á Íslandsmiðum undanfarna þrjá áratugi. Þessar rannsóknir hafa einkum farið fram í mars, í árlegu togararalli frá árinu 1985, en einnig að haustlagi í haustralli frá 1996. Meginfæða þorsks öll árin sem rannsóknin nær til var loðna, rækja og ljósáta. Af þessum þremur fæðustofnun er loðnan þó langmikilvægust, eins og fyrri rannsóknir hafa ítrekað sýnt. Verulegar breytingar hafa orðið á áti þorsks á tímabilinu, ekki síst í áti á loðnu og rækju en át á þeim hefur minnkað nokkuð á síðustu fimmtán árum. Rannsóknin sýnir að þorsknum tekst ekki að bæta að fullu minna át á loðnu þegar loðnustofninn er lítill með áti á annarri bráð. Minni loðnustofn er því sennilega ein helsta skýring þess að meðalþyngd þorsks hefur lækkað undanfarin tíu ár.- mþl
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira