Vill efla kynferðisbrotadeildina 1. júlí 2011 06:30 Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill efla kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og gera hana ráðgefandi fyrir önnur embætti á landinu. Deildin muni ekki taka yfir rannsóknir heldur verða öðrum embættum til halds og trausts. Víðtækt samráð fjölmargra hagsmunaaðila fór af stað í haust um hvaða leiðir mætti fara til að laga brotalamir í meðferð kynferðisbrotamála. Ögmundur segir að þessi tillaga sé ein þeirra sem fæðst hafi í því samráði. Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, hefur talað fyrir því að kynferðisbrotadeildin á höfuðborgarsvæðinu verði efld. „Lögreglan víðs vegar um land hefur staðið sig mjög vel í rannsókn slíkra mála, um það eru mörg dæmi. Það eru hins vegar veikleikar í þessu kerfi, á því leikur enginn vafi,“ segir Ögmundur. Hann nefnir því til sönnunar að deildir séu víða fámennar og eins geti nálægðin við málsaðila verið erfið. Ögmundur sér þetta fyrir sér sem lið í lengra ferli sem hæfist á forgangsröðun innan lögreglunnar. „Það er hins vegar ekki nóg að breyta skipulagi ef ekki fylgir fjármagn með. Deildin er fámenn og henni er þröngur stakkur skorinn fjárhagslega. Það er nokkuð sem við verðum að laga.“- kóp
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira