Enginn vafi talinn á ásetningi Hauks Þórs 1. júlí 2011 04:00 Haukur Þór Haraldsson, sem er til vinstri á myndinni, var fundinn sekur um að hafa dregið sér 118 milljónir króna af reikningi Landsbankans. Mynd/Valli
Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa millifært rúmar 118 milljónir króna af reikningi félags í eigu Landsbankans inn á eigin reikninga 8. og 9. október 2008. Haukur var prókúruhafi fyrir félagið, sem var skráð á Ermarsundseyjunni Guernsey, en í málsvörn sinni sagðist hann hafa millifært fjármunina þar sem honum þótti líklegt að eignir erlendra félaga myndu brenna upp hér á landi. Hann hafi því viljað koma fénu í öruggt skjól á íslenskum reikningi í eigu Íslendings. Dómurinn tiltekur allnokkur atriði sem sögð eru renna stoðum undir þann ásetning Hauks að millifæra fjármunina í auðgunarskyni. Meðal annars hefði honum átt að vera ljóst að eignir Landsbankans hefðu verið fluttar yfir í Nýja Landsbankann skömmu eftir hrun, auk þess hefði hann ekki látið yfirmenn sína vita af þessari ráðstöfun og loks hefði hann ekki bakfært upphæðina sjö vikum síðar þegar skilanefnd bankans spurðist fyrir um millifærsluna. Haukur þarf einnig að greiða verjanda sínum, Gesti Jónssyni, ríflega fjórar milljónir króna, en Gestur sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að málinu yrði áfrýjað. - þj
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira