Ljúka ekki tannviðgerðum 1. júlí 2011 06:00 Samþykktar voru gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir 1.056 börn á aldrinum þriggja til átján ára. Sótt um fyrir 1.335 börn. Afleit tannheilsa hjá mörgum barnanna. Ráðuneytið skoðar leiðir til þess að ljúka viðgerðunum.
Tryggingastofnun samþykkti umsóknir um gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir 1.056 börn tekjulágra foreldra. Ekki mun takast að ljúka viðgerð á tönnum allra þessara barna í sumar, að því er Teitur Jónsson, forseti tannlæknadeildar Háskóla Íslands greinir frá. Átaksverkefni velferðarráðuneytisins er tímabundið og fer fram á tannlæknadeildinni í Læknagarði meðan hlé er á kennslu. „Það hefur ræst úr með þátttöku tannlækna í verkefninu en það mun ekki takast að klára allt sem þarf að gera áður en kennsla hefst í tannlæknadeild í lok ágúst og samningurinn rennur út. Haldið verður áfram að minnsta kosti út næstu viku. Eftir sumarleyfi þurfum við svigrúm til þess að undirbúa deildina undir kennslu sem hefst í lok ágúst,“ segir Teitur. Ástandið á tönnum barnanna sem þegar hafa komið í skoðun hefur verið mjög mismunandi. „Þetta er allt frá því að vera minniháttar vandamál upp í afleita tannheilsu og miklar skemmdir. Það eru fjöldamörg dæmi um að börn hafi komið með margar skemmdar tennur, jafnvel 20 alls. Það eru einnig dæmi þess að draga hafi þurft fullorðinstennur úr börnum.“ Átaksverkefnið nær til barna á aldrinum þriggja til 18 ára. „Það kemur mér eiginlega á óvart að fleiri tekjulágir skuli ekki hafa sótt um gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir börnin sín. Þetta eru 16 árgangar og í hverjum árgangi eru um fjögur til fimm þúsund börn,“ bendir Teitur á en alls var sótt um fyrir 1.335 börn. Hann telur að takast muni að skoða tennur meirihluta þeirra barna sem fengið hafa samþykki Tryggingastofnunar í sumar. Samningurinn um viðgerðirnar gildir til 26. ágúst. Þar sem ekki mun takast að ljúka tannviðgerðunum fyrir þann tíma er óljóst hvernig þjónusta á þau börn sem standa út af. Helga Ágústsdóttir, deildarstjóri í velferðarráðuneytinu, segir menn vera að huga að úrræðum. „Ráðuneytið er að skoða leiðir til að bregðast við þessu,“ segir hún. Sjúkratryggingar Íslands hafa nú framlengt samning við tannlækna um forvarnarskoðanir þriggja, sex og 12 ára barna til næstu áramóta. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Útför Björgvins Halldórssonar Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira