Þorskkvóti aukinn merkjanlega vegna stækkandi stofns 9. júní 2011 06:15 Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, kynnti tillögur stofnunarinnar á blaðamannafundi í gær.Fréttablaðið/Pjetur
Hafrannsóknastofnunin leggur til að þorskkvóti verði aukinn úr 160 þúsund tonnum í 177 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Stofnunin kynnti í gær tillögur sínar um hámarksafla um þrjátíu fiskistofna á næsta fiskveiðiári. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, segir aðgerðir undanfarinna ára, í þá átt að fjölga í þorskstofninum og nýta hann betur, hafa skilað árangri. Stofninn fari stækkandi og fiskarnir séu þyngri. Þá segir hann allar líkur á því að hægt verði að veiða allt að 250 þúsund tonn af þorski árið 2016 verði 20 prósenta aflareglunni, sem Hafró mælir með, fylgt næstu fimm árin. Aflareglan felur í sér að leyfa skuli veiðar á 20 prósentum af viðmiðunarstofni en raunar valda ýmsar viðbótarheimildir og tilfærslur milli ára því að veiðar geta vikið frá viðmiðinu. Þorskaflinn á nýafstöðnu fiskveiðiári varð þannig á endanum 169 þúsund tonn í stað 160 þúsund tonna. Hafró leggur til að aflamark ýsu verði 37 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári samanborið við 45 þúsund tonn á yfirstandandi ári. Ýsustofninn hefur minnkað mikið á undanförnum árum sem rekja má til minni áhrifa risaárgangsins frá 2003. Jóhann segir miklar líkur á því að stofninn fari niður fyrir sögulegt lágmark á næstu árum þegar árgangar síðustu ára, sem hafa verið litlir, koma inn í hrygningarstofninn. Þá leggur stofnunin til að tekin verði upp aflaregla fyrir ýsu rétt eins og gert hefur verið í þorski. Þá er útlit fyrir góða loðnuvertíð en mælingar Hafró benda til vertíðar upp á um 700 þúsund tonn en aflamark á yfirstandandi ári var 390 þúsund tonn. Hafró gefur hins vegar ekki út endanlegt aflamark í loðnu fyrr en í haust þegar frekari mælingar liggja fyrir. Í öðrum helstu nytjastofnum leggur stofnunin til að leyfður ufsaafli verði 45 þúsund tonn en í fyrra taldi stofnunin óhætt að veiða 40 þúsund tonn. Þá er gerð tillaga um 40 þúsund tonna hámarksafla á gullkarfa samanborið við 30 þúsund tonn í fyrra. Tillögur Hafró um aflamark annarra stofna eru flestar í takti við tillögur ársins í fyrra. Þó er verulega dregið úr aflamarki íslenskrar sumargotssíldar en mikil óvissa er um þróun stofnsins vegna sýkingar sem hefur hrjáð hann. „Auðvitað fagna ég því að verið sé að bæta við í þorskinum en ég harma það aftur á móti að við séum með svo arfavitlausa aflareglu að það skuli ekki vera hægt að bregðast við góðu ástandi með meiri aukningu. Okkur finnst þetta alltof lág aflaregla,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, og bætir við að tillögur Hafró í karfa og loðnu séu einnig fagnaðarefni. Annað hafi ekki komið á óvart. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir mjög jákvætt að þorskstofninn hafi vaxið mikið á undanförnum árum sem gefi tilefni til aukinnar veiði. „Á sama tíma er hins vegar algjörlega óþolandi að núna þegar uppbyggingin er að takast eigi að taka stóran hluta hennar af þeim sem færðu fórnir til að byggja stofninn upp,“ segir Friðrik með vísan til þess ef fyrirhugaðar breytingar á stjórn fiskveiða ganga eftir. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Rex Heuermann fær lífstíðardóm Erlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Fleiri fréttir „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Sjá meira