Eina stelpan í keppninni fyndnasti Verzlingurinn 27. mars 2011 10:30 Margrét var á gráu svæði í uppistandinu sem tryggði henni sigur í keppninni fyndnasti Verzlingurinn.fréttablaðið/pjetur
Margréti Björnsdóttur, fyndnasta Verzlingnum, fannst vanta fleiri stelpur í keppnina, sem fór fram í vikunni. Hún bjóst ekki við að fólk myndi hlæja að uppistandinu sem tryggði henni sigur. „Ég er mikill grínari en þetta er í fyrsta skipti sem ég flyt uppistand," segir Margrét Björnsdóttir, nemandi í Verzlunarskóla Íslands. Margrét kom, sá og sigraði í keppninni Fyndnasti Verzlingurinn síðasta fimmtudagskvöld. Í dómnefnd sátu Ari Eldjárn, Dóri DNA og Bergur Ebbi úr grínhópnum Mið-Íslandi og Ugla Egilsdóttir úr Uppistöðufélaginu. Margrét var jafnframt eina stelpan sem tók þátt og segir að keppnin hafi verið hörð. „Mér fannst svolítið leiðinlegt að vera eina stelpan, ég hefði viljað sjá fleiri," segir hún. „En mér fannst ég ekki geta bakkað úr þessu. Ég varð að vera fulltrúi kvenfólksins." Margrét er formaður grínklúbbsins 12:00 í Verzló, en hún bjóst ekki við að vinna. „Ég var búin að ákveða að enginn myndi hlæja. Svo hlógu allir og skemmtu sér mjög vel," segir hún sátt. Spurð um umfjöllunarefni uppistandsins segist Margrét hafa verið á afar gráu svæði. „Ég byrjaði á að tala um reynslusögur," segir hún. „Ég hef lent í að pissa í mig úr hlátri og talaði aðeins um það. Svo talaði ég um prump og þá sérstaklega um stelpur sem prumpa." Hún tekur fram að húmorinn sé einfaldur, en settur fram á skemmtilegan hátt. Þetta kom henni í gegnum fyrstu umferð, en í úrslitaumferðinni fór hún ennþá lengra út á gráa svæðið. „Þá var ég með uppistand um píkuprump. Fólk tók vel í hvað ég var óviðeigandi." Margrét segir það hafa verið heiður að vinna keppnina, sérstaklega þar sem hún hefur mikið álit á dómurunum. Hún tekur þó fram að þá Ara Eldjárn og félaga í Mið-Íslandi vanti kvenmann í hópinn. „Þannig að þeir vita af mér," segir Margrét. „Þeir geta haft samband. Ég er einmitt að leita að skemmtilegu sumarstarfi."atlifannar@fréttabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira