Segir aðstoðarmann fara með rangfærslur 10. mars 2011 07:00 Örnólfur Thorsson
Hrannar B. Arnarsson Ritari forseta Íslands sakar aðstoðarmann forsætisráðherra um að viðhafa alvarlegar rangfærslur um samskipti forsetans og forsætisráðherrans í tengslum við lækkun launa forsetans og laun handhafa forsetavalds. Í viðtali við Fréttablaðið í gær sagði Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að Jóhanna væri nýbúin að frétta af því að laun forseta hefðu lækkað í ársbyrjun 2009. „[Jóhanna] er nýbúin að frétta af þessum launalækkunum forsetans. Þú vissir hvernig þetta var áður, það fór frumvarp inn í þingið og þar töldu menn engar heimildir í stjórnarskrá til að lækka launin,“ sagði Hrannar í samtali við Fréttablaðið á þriðjudagskvöld. Síðar sagði hann: „Forsetinn er nýbúinn að upplýsa forsætisráðherra um að hann hafi óskað eftir og fengið lækkun en að hún hafi ekki gengið yfir handhafana. Jóhanna hefur í framhaldinu ákveðið að óska eftir sambærilegri lækkun á sínum hlut þannig að hann verði sambærilegur og hjá forsetanum.“ Í harðorðu bréfi sem Örnólfur Thorsson forsetaritari sendi Hrannari í gær hafnar Örnólfur þessum skýringum Hrannars. Örnólfur bendir á að forsetinn hafi sjálfur óskað eftir og fengið launalækkun í ársbyrjun 2009. Um það hafi verið fjallað mikið í fjölmiðlum og málið hafi legið ljóst fyrir í tvö ár. Örnólfur segir einnig rangt að forsetinn hafi nýlega upplýst forsætisráðherra um að hann hafi óskað eftir og fengið lækkun, og að hún hafi ekki náð til handhafa forsetavalds. „Forseti er ekki „nýbúinn að upplýsa forsætisráðherra“ um þetta mál enda slíkt óþarfi þar eð málið hefur legið fyrir opinberlega í rúm tvö ár. Það er mikilvægt að aðstoðarmaður forsætisráðherra fari rétt með staðreyndir varðandi samskipti forseta og forsætisráðherra,“ skrifar Örnólfur. „Skrifstofa forseta vill vekja athygli á að alveg eins og forseta Íslands var kleift að fá laun sín lækkuð í árslok 2008 þá gátu handhafar forsetavalds fengið sín laun lækkuð með sömu aðferð hvenær sem var á þeim tveimur árum sem liðin eru frá lækkun launa forsetans.“ Í svarbréfi Hrannars hafnar hann alfarið „dylgjum“ um að hafa farið rangt með staðreyndir. Hann segir að skýrt hafi komið fram að forsætisráðherra hafi nýlega fengið upplýsingar um að launalækkunin hafi ekki náð til handhafa forsetavalds. Hrannar bendir á að Jóhanna hafi ekki verið orðin forsætisráðherra í ársbyrjun 2009, og hafi því ekki haft forsendur til að meta hvort greiðslur handhafa forsetavalds hefðu lækkað. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira