Hannesi Hlífari nægðu tíu leikir til sigurs 10. mars 2011 05:00 Evgenij Miroshnichenko tapaði aðeins einni af tíu blindskákum. Það var fyrir alþingiskonunni og skákdrottningunni Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Fréttablaðið/Vilhelm
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson þurfti aðeins tíu leiki til að vinna fyrsta andstæðing sinn á Reykjavíkurskákmótinu sem hófst síðdegis í gær. Það var Spánverjinn Jordi Agullo Herms sem tapaði fyrir Hannesi. Herms er aðeins með 2098 skákstig en Hannes hefur 2557 stig. Margir sterkir skákmenn tefla á Reykjavíkurskákmótinu sem haldið er í 26. sinn. Stigahæstur er enski stórmeistarinn Luke McShane með 2683 stig. Ivan Sokolov frá Bosnínu, sem sigraði á mótinu í fyrra, er einnig mættur til leiks. Sömuleiðis úkraínski stórmeistarinn Evgenij Miroshnichenko. Geta má þess að bróðursonur hins heimsfræga búlgarska knattspyrnumanns Dimitri Berbatov hjá Manchester United er meðal keppenda. Sá heitir Kiprian Berbetov og er aðeins fjórtán ára – eins og yngsti stórmeistari heims, Ilya Nyznhik frá Úkraínu sem líka teflir á mótinu. Evgenij Miroshnichenko tefldi blindskák við tíu manns í einu fyrir sjálft mótið. Miroshnichenko vann níu andstæðinga en tapaði fyrir Guðfríði Lilju Grétarsdóttur – sem reyndar bauð Úkraínumanninum upp á skiptan hlut í endataflinu. Þá var Guðfríður með yfirhöndina en vildi sinna barni sem hún er með á brjósti. Miroshnichenko þáði ekki jafnteflið. „Ég held ég sé með tapaða stöðu svo ég verð að hafna tilboðinu,“ sagði hann og gafst upp við kátínu áhorfenda.- gar
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira