Fréttaskýring : Fá 1,6 milljónir fyrir að leysa forsetann af 9. mars 2011 21:00 Ólafur Ragnar Grímsson.
Jóhanna Sigurðardóttir Hvernig er launagreiðslu til handhafa forsetavalds í fjarveru forsetans háttað? Þremenningarnir sem fara með forsetavald þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er ekki á landinu fá um 20 þúsund krónur fyrir hvern dag sem forsetinn er erlendis. Á síðasta ári fékk hver þeirra um 1,6 milljónir króna í aukagreiðslur vegna þessa. Í fjarveru forsetans eru forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar handhafar forsetavalds. Fyrir það fá þeir greiðslur sem koma af fjárheimildum embættis forseta. Hver þremenninganna fær þriðjung af launum forsetans fyrir þá daga sem hann er erlendis. Snemma árs 2009 lækkuðu laun Ólafs Ragnars Grímssonar úr rúmlega 1,8 milljónum á mánuði í ríflega 1,5 milljónir króna, eða um fimmtán prósent. Launin lækkuðu að ósk Ólafs Ragnars, í hlutfalli við launalækkun ráðherra í ríkisstjórninni. Handhafar forsetavalds hafa ekki óskað eftir sambærilegri launalækkun, og fær hver þeirra því áfram þriðjung af launum Ólafs eins og þau voru fyrir lækkunina. Þetta kom í ljós við yfirferð yfir ársreikning embættis forseta Íslands nýverið, segir Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri hjá embættinu. Hann segir að gerð hafi verið skrifleg athugasemd vegna þessa, en kannaðist ekki við að svar hafi borist. Laun allra starfsmanna embættis forseta lækkuðu eftir hrunið. Staðgenglar forseta fá um 20 þúsund krónur fyrir hvern dag sem Ólafur Ragnar er erlendis. Á síðasta ári var hann utan landsteinanna í 79 daga. Handhafar forsetavalds fengu því hver um sig tæplega 1,6 milljónir króna í aukagreiðslur á síðasta ári. Það jafngildir 132 þúsunda króna launauppbót í hverjum mánuði. Það sem af er ári hefur Ólafur Ragnar verið 22 daga erlendis. Það skilar handhöfum forsetavalds um 440 þúsund króna launauppbót. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira