Ekki tekið á yfirgefnum sjókvíum í lögum 7. mars 2011 10:00 Stór áform eru uppi um laxeldi í sjókvíum í Arnarfirði. Vesturbyggð telur mat á umhverfisáhrifum óþarft.Fréttablaðið/Jón Sigurður
Tvö fyrirtæki, Arnarlax og Fjarðalax, vilja heimild fyrir samtals 4.500 tonna laxeldi í Arnarfirði. Vesturbyggð segist í umsögn til Skipulagsstofnunar ekki telja að það eigi að vera háð mati á umhverfisáhrifum. „Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir áhyggjum sínum yfir þeim töfum sem hafa orðið á útgáfu leyfa til laxeldis í Arnarfirði. Miklar vonir eru bundnar við nýtingu náttúruauðlinda til gjaldeyrisskapandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu öllu með tilheyrandi fjölgun starfa og auknum umsvifum í sveitarfélaginu," segir bæjarráðið sem hins vegar hefur áhyggjur af því hvað verði ef sjókvíaeldið lognast út af. „Hvergi virðist tekið á því í lögum að ef starfsemi af einhverjum sökum leggst af þá sé það skylda rekstraraðila að ganga frá svæðum eins og komið var að þeim. Til eru dæmi um að mannvirki í sjó hafi verið yfirgefin og enginn skuldbundinn til að ganga frá. Eins og fram hefur komið hafa sveitarfélög ekki skipulagsvald utan netalaga og því er spurt hvort hægt er að beita lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir í slíkum tilfellum," segir bæjarráðið, sem kveður núgildandi lög og reglur um rekstrarleyfi til fiskeldis í sjó löngu úreltar og skorar á yfirvöld að endurskoða þau hið fyrsta. - gar
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira