Íbúar gætu verið bótaskyldir fjúki ruslatunnurnar 4. apríl 2011 18:45
Íbúar Reykjavíkur sem kjósa að færa ruslatunnur sínar út að götu á sorphirðudegi eiga á hættu að verða bótaskyldir ef tunnurnar fjúka til í roki. Tryggingafélögin segja flækjustigið mikið og óttast að fjöldi slíkra mála berist. Frá og með 1. maí verða sorphirðudagar í Reykjavík á tíu daga fresti. Þeir íbúar Reykjavíkur sem kjósa að fara með sínar tunnur út að götu, í stað þess að greiða aukasorphirðugjald,. þurfa því að fara inn á vef Reykjavíkurborgar, grafa upp þetta kort, finna sitt hverfi og fara síðan með tunnurnar út að götu á þeim dögum sem þetta litadagatal gefur til kynna. Veðrið á Íslandi er hins vegar ekki alltaf jafn stillt og gott og það er í dag. Ruslatunnurnar geta því auðveldlega fokið til, sérstaklega þegar þær eru tómar, og rispað þá bíla sem lagt er upp við hús á þessum þrengstu götum borgarinnar. Þá vaknar að sjálfsögðu álitamál um hver eigi að bera ábyrgð á tjóninu. Reykjavíkurborg er eigandi allra ruslatunna í borginni. Hins vegar er það íbúi húsnæðis sem kemur henni fyrir úti á götu og sorphirðumaður sem skilur hana þar eftir tóma. Í svari við fyrirspurnum fréttastofu segja helstu tryggingafélögin að þau óttist að fjölmörg slík mál berist í hvert sinn sem það hvessir. Hins vegar sé enn alveg óljóst hver beri ábyrgðina. Hvert atvik þurfi að skoða og meta sérstaklega. Þá sé mjög erfitt að meta sakarmatið enda getur ábyrgðaraðili ruslatunnu skilið hana eftir á gangstéttinni í góðu veðri og góðri trú um að það haldist óbreytt. Hins vegar þekkja flestir að veðurspánni á Íslandi er sjaldnast hægt að treysta. Flækjustigið er því mikið og ábyrgðin óljós en engu að síður kemur það vel til greina að umsjónarmaður ruslatunnunar beri ábyrgð á því tjóni sem hún veldur.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira