Stjórnlagaráð leggur fram drög að nýrri stjórnarskrá 18. júlí 2011 15:48 Frá setningu Stjórnlagaráðs þann 6. apríl síðastliðinn. Mynd/GVA
Stjórnlagaráð hefur lagt fram fyrstu drög að nýrri stjórnarskrá á grundvelli svokallaðs áfangaskjals. Nú taka við umræður um breytingartillögur á ráðsfundum og má því gera ráð fyrir því að frumvarpið taki nokkrum breytingum næstu daga, en stefnt er að því að verkinu verði skilað til forseta Alþingis þann 29. júlí næstkomandi. Sakvæmt drögunum mun stjórnvöldum til að mynda bera skylda til að tryggja óheftan aðgang að internetinu, verði þau samþykkt, en ákvæði 62. gr. núverandi stjórnarskrár, sem tiltekur að hin evangeliska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi, er hinsvegar hvergi að finna. Þá mun forseti Íslands ekki geta setið lengur en þrjú kjörtímabil, fimmtán prósent kjósenda munu geta lagt fram frumvarp á Alþingi eða kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um þingmál, og atkvæði kjósenda alls staðar á landinu koma til með að vega jafnt. Ekki mega vera fleiri en tíu ráðherrar í ríkisstjórn og verður ráðherrum gert að víkja úr þingsæti. Í sérstökum kafla um náttúruauðlindir Íslands eru auðlindir skilgreindar sem eign þjóðarinnar og skýrt tekið fram að enginn geti fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota. Drögin hafa verið birt á vef ráðsins, en sem fyrr segir er stefnt að því að skila verkinu til forseta Alþingis í lok næstu viku.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira