Gömul seglskip og mótorskip fylla Húsavíkurhöfn 18. júlí 2011 19:00
Floti gamalla seglskúta og vélskipa frá sex löndum er kominn til Húsavíkur vegna norrænnar strandmenningarhátíðar, sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ýtti formlega úr vör síðdegis. Þessi þriggja mastra skonnorta kom inn til Húsavíkur undir kvöld eftir siglingu frá Danmörku en hún er hópi nærri þrjátíu skipa og báta sem verða til sýnis. Gestur Pálsson tók myndir með frétt Stöðvar 2 en þetta er í fyrsta sinn sem hátíð af þessu tagi er haldin hérlendis. Tilgangurinn er að halda í heiðri norrænni strandmenningu og kynna núlifandi kynslóðum þau tæki, tól og vinnubrögð sem fyrri kynslóðir notuðu við sjósókn. Má nú sjá í Húsavíkurhöfn gömul skip og báta frá Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi og svo auðvitað frá Íslandi. Á þriðja hundrað útlendinga taka þátt í hátíðinni, sem kallast Sail Húsavík, og komu margir siglandi, flestir á gömlu norsku strandferðaskipi, sem áður var á hinni frægu Hurtigruten-leið, en gegnir hlutverki hótels þessa vikuna á Húsavík. Hátíðinni lýkur á föstudag og rennur hún þá saman við Mærudaga en Húsvíkingar vonast til að fá yfir tíu þúsund manns í bæinn, að sögn Helgu Viðarsdóttur, markaðsstjóra Norræna hússins, en það stendur að hátíðinni í samvinnu við norræn grasrótarsamtök og heimamenn. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hleypti svo af stokkunum nú síðdegis verkefninu Garðarshólma, sem á að verða miðstöð fræða og menningar í gömlu síldarverksmiðjunni á Húsavík. Heimasíðu strandmenningarhátíðarinnar er hægt að skoða hér.
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira