Millistjórnendur launahærri en bankastjórinn 18. júlí 2011 18:35
Undirmenn bankastjóra Landsbankans eru með þriðjungi hærri mánaðarlaun en hann. Bankasýsla ríkisins hefur gert athugasemdir við fjármálaráðuneytið vegna lágra launa bankastjórans. Framkvæmdastjórn Landsbankans sér um daglegan rekstur, en í henni sitja átta framkvæmdastjórar sem eru beinir undirmenn bankastjórans Steinþórs Pálssonar. Allir þeirra eru með mun hærri laun en bankastjórinn sjálfur. Samkvæmt síðasta ársreikningi bankans fengu þeir greidda eina og hálfa milljón króna á mánuði í laun og hlunnindi, en það er rúmum þriðjungi meira en 1,1 milljónin sem bankastjórinn fær. Þessi laun bankastjórans eru ákvörðuð af kjararáði, en þar hefur sú stefna verið mörkuð að enginn fái betur greitt en forsætisráðherra. Bankasýsla ríkisins, sem fer með eignarhlut hins opinbera í bankanum, gerir athugasemdir við fyrirkomulagið í ársskýrslu sinni og segir að það geti reynst óheppilegt í samkeppnisrekstri. Þá varar bankasýslan við þeirri tilhneigingu að sérreglur eigi að gilda um fjármálafyrirtæki í ríkiseigu; það geti komið niður á verðmæti fyrirtækjanna og skerði þannig almannahagsmuni. Bankasýslan hefur jafnframt gert athugasemdir við fjármálaráðuneytið, en það telur laun Steinþórs ekki samræmast eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum, þar sem fram kemur að laun stjórnenda skuli standast samanburð við einkageirann, án þess að vera leiðandi. Bankasýslan telur launin ekki standast samanburð, en eins og við sjáum hér eru bankastjóralaunin í Landsbankanum mun lakari en þær 2,6 milljónir sem Birna Einarsdóttir fær mánaðarlega hjá Íslandsbanka og 2,9 milljónirnar sem Höskuldur Ólafsson fær hjá Arion banka.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira