Bíða niðurstöðu blóðrannsóknar 28. janúar 2011 05:00 Banaslysið gerðist nokkrum kílómetrum sunnan við Akureyri og er blóðsýni úr ökumanninum nú til rannsóknar. fréttablaðið/vilhelm
Lögreglan á Akureyri bíður eftir niðurstöðum blóðrannsóknar á ökumanninum sem var undir stýri þegar maður lést á Eyjafjarðarbraut 20. janúar síðastliðnum. Samkvæmt lögreglunni á Akureyri virðist sem ökumaðurinn, sem er 24 ára gamall, hafi keyrt yfir á öfugan vegarhelming og lent á manninum, sem var að skokka við veginn. Bæði bíllinn og hinn gangandi voru á leið norður þjóðveginn, í átt að Akureyri. Bíllinn lenti aftan á manninum með fyrrgreindum afleiðingum. Einn farþegi var í bílnum, einnig á þrítugsaldri. Ekkert bendir til þess að ekið hafi verið á ólöglegum hraða, en skyggni var slæmt og mikill vindur. Bíllinn stoppaði um leið og það voru ökumaður og farþegi sem tilkynntu slysið til lögreglu. Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir að leiði blóðrannsókn í ljós að ökumaður hafi verið undir áhrifum, verði hann að öllum líkindum ákærður. „Ef fíkniefni eða áfengi mælist í blóði ökumannsins, gæti farið svo að hann verði ákærður fyrir manndráp af gáleysi,“ segir Gunnar. „Það er mjög algengt að það sé ákært í svona málum.“ Ökumaður og farþegi hafa komið áður við sögu lögreglu. - sv
Mest lesið Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Ísland frumstætt samanborið við Noreg Innlent Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Innlent „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Innlent Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Innlent Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Innlent Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Erlent Tilkynnt um par að slást Innlent Fleiri fréttir Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Norsku kafararnir mættir í Haukadalsá Ekki allt sem sýnist varðandi launin Húsleit á heimili þekkts brotamanns Hraðari aflögun í Krýsuvík en áður Þess sem stýrir rannsókn að ákveða lengd símabanns fanga Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Sjá meira