Kísilver í Helguvík frestast 28. janúar 2011 18:46
Fulltrúar frá bandarísku fyrirtæki, sem vill reisa kísilver í Helguvík, héldu heim í dag án þess að samningar kláruðust en búist hafði verið við undirskrift í þessari viku. Vonir eru bundnar við að málið komist í höfn í febrúar.Smíði kísilvers í Helguvík fyrir átján milljarða króna yrði stærsta nýja erlenda fjárfestingin hérlendis frá bankahruni. Hún hefði því ekki aðeins mikla efnahagslega þýðingu heldur að líkindum afar jákvæð sálræn áhrif, ekki síst á Suðurnesjum, en um 150 störf myndu skapast við verkefnið næstu tvö ár og síðan 90 framtíðarstörf.Fulltrúar bandarísku fjárfestanna hafa dvalið á Íslandi undanfarnar tvær vikur og var markmið þeirra sem að málinu vinna að ljúka öllum samningum í þessari viku svo unnt yrði að tilkynna fyrir mánaðamót að framkvæmdir hæfust í vor. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 leit út lengi fram eftir vikunni að það tækist, ekki síst þar sem flóknir orkusamningar við bæði HS Orku og Landsvirkjun eru taldir nánast tilbúnir til undirskriftar.Heimildarmenn fréttastofu segja að á lokasprettinum síðustu daga hafi það einkum verið atriði í fjárfestingarsamningi við ríkið sem ekki tókst að klára og urðu til þess að bandarísku samningamennirnir sneru heim í dag. Mönnum ber þó saman um að ekki sé um ágreining að ræða heldur þurfi einfaldlega lengri tíma til að ganga frá samningum og ríkir bjartsýni um það geti tekist innan fárra vikna.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Sjá meira