Hundurinn fundinn eftir hrakninga 28. janúar 2011 06:00 „
Skjöldur er fundinn og kominn í góðar hendur eftir mikla hrakninga," segir Gunnar Ólafsson, sem leitað hefur ákaft að hundinum Skildi, sem hann þurfti að láta frá sér vegna búferlaflutninga. Fréttablaðið birti viðtal við Gunnar fyrr í mánuðinum, þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af afdrifum hundsins. Gunnar hafði þá þurft að flytja í fjölbýli vegna örorku sinnar og þar var bannað að vera með hunda. Hann auglýsti eftir nýjum eiganda handa Skildi með því skilyrði að hann mætti hitta hundinn öðru hvoru enda eftirsjáin mikil. Karlmaður svaraði auglýsingunni og fékk hundinn samkvæmt þessu samkomulagi. Þegar Gunnar fór að reyna að hafa samband við manninn virtist hann hafa gufað upp, sem olli ómældum áhyggjum af afdrifum Skjaldar. „Svo þegar þetta birtist í Fréttablaðinu stoppaði síminn hjá mér ekki," segir Gunnar. „Allir voru boðnir og búnir til að svipast um eftir Skildi og aðstoða mig við leitina að honum. Ég er öllu þessu fólki afskaplega þakklátur." Besta símtalið sem Gunnar fékk þó var frá fjölskyldu í Njarðvíkum. Hjá henni var Skjöldur í góðu yfirlæti. Maðurinn sem upphaflega fékk hann auglýsti hann nokkru síðar gefins, að sögn Gunnars. Fólkið sem tók við Skildi þá ætlaði að láta svæfa hann þar sem hann var orðinn grindhoraður og illa til reika. Nágrannafjölskylda fólksins bað þá um að fá hundinn, sem nú er allur að hjarna við og taka gleði sína á ný. Hjá henni verður hann til frambúðar.- jss
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Fleiri fréttir Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Sjá meira