Ekki tilefni til afsagnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. janúar 2011 19:28 Ögmundur Jónasson segir það sína skoðun að ekki hafi verið tilefni til afsagnar. Mynd/ Stefán. „
Það er mín persónulega skoðun að ekki hafi verið tilefni til afsagnar, hvorki af hálfu landskjörstjórnar né af hálfu annarra aðila sem önnuðust framkvæmd þessarar kosningar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Landskjörstjórn sagði af sér nú undir kvöld vegna úrskurðar Hæstaréttar á þriðjudaginn þar sem stjórnlagaþingskosningarnar voru ógilta. Ögmundur segir að um sé að ræða sjálfstæða stjórn sem taki eigin ákvarðanir á eigin forsendum. „Fyrst þetta er þeirra mat þá bera að virða það," segir Ögmundur. „Ég hef margoft sagt að það sem fór úrskeiðis var samspil margra annnarra þátta. Í fyrsta lagi hef ég horft til Hæstaréttar sem kemst að þessari niðurstöðu á forsendum sem ég tel vera afar umdeilanlegar þótt ég leggi áherslu á að við förum að úrskurði dómsins," segir Ögmundur. Í annan stað hafi veirð brotalamir í löggjöfinni þar sem annars vegar almenn kosningalög og hins vegar lög um stjórnlagaþingið hafi verið misvísandi. „Í þriðja lagi var það framkvæmdin sem var á hendi margra aðila, ráðuneytisins, landskjörstjórnar og sveitarfélaga," segir Ögmundur. Ögmundur segir að kosningin hafi ekki verið kærð vegna þess að einhver hafi talið að á sér hefði verið brotið. „Heldur vegna þess að samkvæmt yfirlýsingu eins aðila var hann að reyna að finna formgalla á kosningunni og Hæstiréttur fann slíka formgalla og dæmdi alla kosninguna ólöglega sem kom mér verulega á óvart í ljósi almannahagsmuna og með tilliti til lagaumgjarðarinnar og þeirra forsendna sem hann starfar samkvæmt," segir Ögmundur. Hann ítrekar að þótt hann virði niðurstöður Hæstaréttar og véfengi ekki að henni eigi að hlíta þá telji hann hana vera mjög umdeilanlega.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira