„Nú fer lyftan niður“ 10. janúar 2011 22:02 Ásmundur Einar og Lilja. Mynd/GVA
Þingflokksfundi Vinstri grænna lauk á tíunda tímanum í kvöld. Árni Þór Sigurðsson, starfandi formaður þingflokksins, sagði að loknum fundinum í samtali við fréttastofu RÚV að þremenningarnir sem kröfðust afsökunarbeiðni frá honum í gær ekki hafa lagt fram slíka beiðni á fundinum. Vísir hefur reynt að ná tali af Árna Þór og öðrum þingmönnum VG í kvöld, en án árangurs. Á þingflokksfundi á miðvikudaginn í síðustu viku lögðu Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, þau hin sömu og sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga, fram greinargerð þar sem þau svöruðu Árna Þór, en hann sakaði þau um að reyna að þvinga ríkisstjórnina til að skipta um stefnu í greinargerð sem hann lagði fyrir þingflokkinn tveimur dögum fyrir jól. Þau fóru auk þess fram opinbera afsökunarbeiðni að hálfu Árna Þórs. Þingflokkurinn kom saman á nýjan leik í dag. Fundi var frestað síðdegis og hófst aftur um klukkan 18. „Ég hef ekki verið beðinn um það og ég hef ekkert heyrt um það," sagði Árni Þór í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins spurður hvort farið hafi verið fram á afsökunarbeiðni á fundinum. Í fréttum RÚV var einnig rætt við Ásmund Einar og Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra. Aðspurður hvort hann hefði óskað eftir því að Árni Þór bæðist afsökunar sagði Ásmundur Einar: „Nú fer lyftan niður. Hún fór upp fyrr í dag." Spurður nánar út í þau orð svaraði þingmaðurinn: „Það þýðir að hún er búin að fara upp og fer núna niður." Þegar Ásmundur var spurður hvort þremenningarnir væru enn hluti af þingflokki VG greip Ögmundur orðið og furðaði sig á því að fréttamenn hefðu einungis áhuga á þessu tiltekna máli. Hann benti ennfremur á að þingfundinum hefðu þingmenn VG rætt um málefni á borð við Evrópusambandið og fiskveiðistjórnunarkerfið.
Tengdar fréttir Steingrímur: Engin krafa um afsökunarbeiðni Enn eru harðar deilur í þingflokki Vinstri grænna en þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga saka meirihlutann á Alþingi um ofríki. Þá krefja þeir starfandi formann þingflokks Vinstri grænna um opinbera afsökunarbeiðni. 10. janúar 2011 19:25 Þingmenn VG funda um ágreining Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman á nýjan leik klukkan 18 eftir að hlé var gert á fundi þingflokksins síðdegis. Þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga gagnrýna það sem þeir kalla ofríki meirihlutans á Alþingi. Þingflokkurinn reynir nú að jafna ágreining milli ólíkra fylkinga. 10. janúar 2011 17:51 Mest lesið Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Fleiri fréttir „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Sjá meira
Steingrímur: Engin krafa um afsökunarbeiðni Enn eru harðar deilur í þingflokki Vinstri grænna en þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga saka meirihlutann á Alþingi um ofríki. Þá krefja þeir starfandi formann þingflokks Vinstri grænna um opinbera afsökunarbeiðni. 10. janúar 2011 19:25
Þingmenn VG funda um ágreining Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman á nýjan leik klukkan 18 eftir að hlé var gert á fundi þingflokksins síðdegis. Þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga gagnrýna það sem þeir kalla ofríki meirihlutans á Alþingi. Þingflokkurinn reynir nú að jafna ágreining milli ólíkra fylkinga. 10. janúar 2011 17:51