Læknaskortur tækifæri til að endurhanna heilbrigðisþjónustu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 26. júní 2011 12:30 Læknar að störfum. Myndin er úr safni.
Forseti læknadeildar Háskóla Íslands segir læknaskort á Íslandi mögulega vera tækifæri til að endurhanna heilbrigðisþjónustuna frá grunni. Hann segir lausnina ekki vera að útskrifa fleiri lækna. Í fréttum stöðvar tvö í gærkvöldi var fjallað um læknaskort á Íslandi. Þar kom meðal annars fram að þriðjungur þeirra sem hafa íslenskt læknaleyfi starfi nú erlendis og að um 100 læknar hafi flust frá landinu á síðustu tveimur árum. Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir og forseti læknadeildar Háskóla Íslands segir eina hugmynd um lausn á þessu vandamáli sé að útskrifa fleiri lækna. „En ég held nú samt einhvern veginn að við ættum að hugsa okkur tvisvar um áður en við förum að mennta fleiri lækna til útflutnings held við ættum frekar að horfa á vandann heima og breyta til og gera læknum auðveldar og fýsilegra að koma hérna heim og vinna hérna,“ segir Sigurður. Hann segir hins vegar að ef læknaskortur verður viðvarandi þurfi mögulega að breyta upbbyggingu heilbrigðisþjónustunnar frá grunni. „Að tefla meira fram öðrum stéttum en læknum í ýmisskonar verk sem núna eru fyrst og fremst á höndum lækna, til dæmis hjúkrunarfræðinga og fleiri, þetta er alþekkt í öðrum löndum, hjúkrunarfræðingar eru mun öflugari til dæmis í heilsugæslu heldur en hér og ýmis störf inn á sjúkrahúsunum eru í höndum hjúkrunarfræðingar sem er síður hér, þetta er eitthvað sem þarf að hugsa og beinir spjótunum ekkert síður að okkur sem sjáum um menntun heilbrigðisstétta,“ segir Sigurður. Hann segir tækifærið einmitt vera núna til að gera svona breytingar. „Neyðin kennir naktri konu að spinna og allar breytingar eru nauðsynlegar öðru hvoru og þær koma oft upp úr svona kreppum eða erfiðum kringumstæðum.“
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira