Hár- og blóðsýni skimuð við leit að díoxínmengun í fólki 9. febrúar 2011 11:00 Sorpbrennslan í Skutulsfirði.
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að gera sérstaka heilsufarsrannsókn á íbúum þriggja sveitarfélaga vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslum. Viðlíka rannsókn hefur aldrei verið gerð áður hér á landi. Þetta var niðurstaða fundar vinnuhóps sem sóttvarnalæknir kemur að auk fulltrúa Umhverfis- og matvælastofnunar vegna mengunar frá sorpbrennslum. Fundað var í gær til að meta hvernig bregðast skyldi við niðurstöðum nýjustu mælinga þar sem díoxín greindist í töluverðu magni í kjöti, mjólk og fóðri hjá bændum í nálægð við sorpbrennsluna Funa á Ísafirði. Eins og Fréttablaðið greindi fyrst frá í janúar mældist díoxín tuttugufalt yfir viðmiðunarmörkum hjá Funa árið 2007. Mælingar í sorpbrennslunni á Kirkjubæjarklaustri á sama tíma sýndu díoxín 95-falt yfir mörkum og frá sorpbrennslunni í Vestmannaeyjum mældist 84 sinnum meira díoxín en viðmiðunarmörk gera ráð fyrir. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að ráðist verði í heilsufarsrannsóknina til að hægt verði að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll hvort fólk hafi orðið fyrir mengun frá sorpbrennslunum. „Framkvæmdin liggur ekki fyrir í smáatriðum en þetta verður gert í samráði við vísindamenn við Háskóla Íslands. Við erum að skipuleggja hvernig sýnin úr fólkinu verða tekin." Haraldur segir að ekki þurfi endilega að koma til þess að tekin verði vefjasýni úr íbúum. „Hægt er að taka blóð- og hársýni auk þess sem það má sjá þetta í brjóstamjólk. Það er hægt að kanna þetta frá ýmsum hliðum og því vonumst við til þess að fá góða mynd af raunverulegri útbreiðslu díoxíns í fólki." Haraldur segir ekki liggja fyrir til hversu margra rannsóknin muni ná. Fyrst verði teknar prufur úr völdum hópum og framhaldið síðan metið. Haraldur ítrekar að hann eigi ekki von á að fólk hafi orðið fyrir heilsutjóni af völdum mengunarinnar. Hins vegar snúi rannsóknin, sem á sér enga hliðstæðu hér á landi, að því mikilvæga atriði að leita upplýsinga um hvað gerðist í sveitarfélögunum þremur. Rannsóknin falli inn í allsherjarúttekt þar sem Matvælastofnun muni meðal annars gera sérstaka rannsókn á jarðvegi í nágrenni við sorpbrennslurnar. Enn er sorp brennt á skólatíma í brennslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri, sem er sambyggð grunnskólanum og sundlauginni á staðnum. Sveitarstjórinn Eygló Kristjánsdóttir kvaðst í gærkvöldi ekki geta svarað því hvort þessar nýjustu fréttir hefðu áhrif á fyrirkomulagið. Hún væri nýbúin að frétta af málinu og væri ekki í vinnunni. „Það verður sjálfsagt skoðað á morgun. En það hefur svo sem ekkert breyst hjá okkur við þetta. Ég veit ekki hvað stjórnin vill gera í ljósi aðstæðna og ætla ekki að ákveða það." - shá
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Sjá meira