Fjöldi nauðungarsalna fjórfaldast frá árunum fyrir hrun 20. desember 2011 20:00 Rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík frá bankahruni. Fjöldinn hefur nærri fjórfaldast frá árunum fyrir hrun.
Rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík frá bankahruni. Fjöldinn hefur nærri fjórfaldast frá árunum fyrir hrun. Mikill fjöldi fasteigna hefur verið seldur nauðungarsölu á síðastliðnum þremur árum. Árið í fyrra var metár hvað þetta varðar en þá voru nauðungarsölur í Reykjavík svo dæmi sé tekið rúmlega 450 talsins eða helmingi fleiri miðað við árið þar á undan. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumönnum í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík hafa rúmlega 2200 fasteignir verið seldar nauðungarsölu í þeirra umdæmum frá ársbyrjun 2009 til loka nóvembermánaðar síðastliðins. Þetta er fjórföldun miðað við meðaltal áranna fyrir hrun. Ástandið er hvað verst í umdæmi sýslumannsins í Keflavík en þar hefur að meðaltali ein fasteign verið seld nauðungarsölu á hverjum einasta virka degi þessa árs. Skuldarar gátu á tímabili óskað eftir frestun á nauðungarsölu samkvæmt lögum sem Alþingi setti árið 2009 en þau lög voru tímabundin og féllu úr gildi í lok mars á þessu ári. Lögin gerðu það að verkum að mikill þrýstingur myndaðist í kerfinu og því varð gríðarlega mikil aukning á nauðungarsölum á milli áranna 2009 og 2010. Í Keflavík og Hafnarfirði þrefaldaðist fjöldinn og í Reykjavík tvöfaldaðist hann.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira