Undankeppni HM hafin í Suður-Ameríku - Higuain með þrennu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. október 2011 11:30 Gonzalo Higuain og Lionel Messi fagna í gær.
Fjórir fyrstu leikirnir í undankeppni HM 2014 í Suður-Ameríku fóru fram í gærkvöldi og nótt. Brasilíumenn taka þó vitanlega ekki þátt í undankeppninni enda verða þeir gestgjafar þegar að úrslitakeppnin fer fram eftir tæp þrjú ár. Öll liðin í Suður-Ameríku eru saman í einum riðli í undankeppninni og komast fjögur efstu liðin áfram upp úr undankeppninni. Liðið í fimmta sæti fer í umspil við liðið sem varð í fimmta sæti undankeppninnar í Asíu um eitt laust sæti í Brasilíu. Brasilía lék vináttulandsleik gegn Kostaríku í nótt og tryggði Neymar Brössum 1-0 sigur í leiknum. Tvö stærstu liðin í undankeppninni, Argentína og Úrúgvæ, fóru bæði vel af stað en auk þeirra unnu Ekvador og Perú sínar viðureignir. Argentína vann Síle, 4-1, þar sem að Gonzalo Higuain, leikmaður Real Mardid, skoraði þrennu. Lionel Messi var líka á skotskónum og kom sínum mönnum í 2-0 í leiknum. Luis Suarez hjá Liverpool kom sínum mönnum í Úrúgvæ á bragðið gegn Bólivíu með marki á fjórðu minútu. Edinson Cavani skoraði einnig og Diego Lugano skoraði hin tvö mörk Úrúgvæ, sem vann Bólivíu, 4-2. Næstu fjórir leikir fara fram á þriðjudaginn og aðfaranótt miðvikudags.Úrslitin: Úrúgvæ - Bólivía 4-2 Ekvador - Venesúela 2-0 Argentína - Síle 4-1 Perú - Paragvæ 2-0
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Sjá meira