Ólafur: Þetta var kærkomið stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2011 20:16 Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands. Mynd/Vilhelm
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, fagnaði fyrsta stiginu í undankeppni EM eftir markalaust jafntefli á móti Kýpur í kvöld. Íslenska liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum en náði nú í sitt fyrsta stig þó að liðið sitji ennþá á botni riðilsins. „Þetta var kærkomið stig. Við vorum frekar daprir í fyrri hálfleik, við vorum ágætir varnarlega en sóknarlega vorum við mjög daprir. Okkur hélst illa á boltanum og við vorukm hræddir og stressaðir. Við fórum yfir það í hálfleik og við vorum heldur betri á boltanum í seinni hálfleik. Seinni hálfleikurinn var heilt yfir betri," sagði Ólafur Jóhannesson í samtali við Arnar Björnsson á Stöð 2 Sport eftir leik. „Ég var að sjálfsögðu sáttastur við að halda markinu hreinu og það var markmiðið okkar númer eitt, tvö og þrjú í þessum leik. Ég var mjög ánægður með vinnuna á mönnum og vinnsluna í liðinu. Þegar við spilum á móti þessum flinku liðum sem eru mikið með boltann þá hlaupum við ótrúlega mikið. Strákarnir hlupu ótrúlega mikið í þessum leik," sagði Ólafur. „Stefán Logi varði vítið og það var mjög vel gert hjá honum," sagði Ólafur um Stefán Loga sem varði víti á 21.mínútu og var besti maður íslenska liðsins í leiknum. „Við vissum það að því lengur sem við héldum þeim í núllinu þá færu þeir að taka meiri áhættu og myndu opna sig. Við áttum tvisvar til þrisvar tækifæri á því að koma okkur í mjög gott færi. Vonandi tekst það næst," sagði Ólafur. „Ég er sáttur því mér finnst mjög fínt að ná í stig hérna. Auðvitað vilja allir fá þrjú stig sem eru að taka þátt í fótboltaleikjum. Ég sætti mig alveg við eitt stig og þetta stig er mjög kærkomið og gott til að byggja ofan á," sagði Ólafur. „Auðvitað var maður hræddur um að fá á sig mark en jafnframt héldum við í vonina um að við gætum komist í gegn og stolið leiknum," sagði Ólafur að lokum.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Sjá meira