Ögmundur vill kjósa aftur til stjórnlagaþings Heimir Már Pétursson skrifar 26. janúar 2011 12:09 Ögmundur Jónasson.
Innanríkisráðherra vill að kosið verði aftur til stjórnlagaþings. Það kemur honum á óvart hvað Hæstiréttur túlkar lögin um kosningar til þingsins þröngt. Dómsmálaráðuneytið, sem nú heyrir undir innanríkisráðuneytið, ásamt Alþingi fór með undirbúning kosninga til stjórnlagaþings. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir það ekki vera áfall fyrir embætti hans og ríkisstjórnina að Hæstiréttur ógilti kosningarnar með dómi í gær. Ögmundur segir niðurstöðu Hæstaréttar hafa komið sér á óvart, að rétturinn hafi ákveðið að ógilda kosninguna vegna formgalla. Staðreyndin sé að engin hafi haldið því fram aðúrslitin hefðu orðið með öðrum hætti ef framkvæmd kosninganna hefði verið önnur. Í innanríkisráðuneytinu sé verið að skoða hvað fór úrskeiðis og sömuleiðis muni landskjörstjórn fara yfir málið. Ögmundur segir að eftir sem áður standi sú krafa eftir að það verkefni verði leyst, að efnt verði til stjórnlagaþings. Enginn hafi gert athugasemdir á Alþingi við frumvarpið um framkvæmd kosninganna. Menn hafi fyrst og fremst tekist á um það hvort halda ætti stjórnlagaþing yfirleittt og vægi þess við breytingar á stjórnarskránni. Nú sé mikilvægast að allir sem komu að undirbúningi og skipulagi kosninganna setjist niður og greini hvað fór úrskeiðis svo þau mistök endurtaki sig ekki. Aðspurður hvort ekki verði að kjósa aftur segir Ögmundur: „Mér finnst það liggja í kortunum."
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni Sjá meira