Lúka Kostic, Salih Heimir og Mihajlo Bibercic Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 10. júní 2011 06:00 Alfreð Finnbogason. Mynd/Anton „
Þetta var erfitt ferðalag í gær og kannski eru menn álíka þungir og Mihajlo Bibercic núna en menn verða flottir á æfingu seinni partinn.“ Blaðamaður brosti við þetta svar Alfreðs Finnbogasonar sem gat sjálfur ekki leynt glottinu sem færðist yfir andlit hans. Greinilegt var að Alfreð var þar með að fara eftir settum reglum sektarsjóðs U-21 landsliðsins um að nefna ákveðna menn á nöfn í viðtölum við okkur fjölmiðlamenn í Álaborg í gær. Eftir því sem fleiri viðmælendur komu í viðtal komu hin nöfnin fljótlega í ljós. „Fyrsti leikurinn er mikilvægur en auðvitað væri gaman að klína honum upp í sammarann gegn Dönum eins og Mihajlo Bibercic gerði hérna í denn en við sjáum til hvernig fer,“ sagði Skagamaðurinn Arnór Smárason eftir að hann var spurður hvort hann hlakkaði til að leika gegn danska landsliðinu, þar sem hann væri nú einu sinni að spila með dönsku félagsliði. Svo var komið að Jóhanni Berg sem fór ekkert sérstaklega fínar leiðir að því að nefna sinn mann á nafn. „Við höfum ekki áhyggjur og erum bara Salih Heimir yfir þessu.“ Þriðja nafnið sem átti að nefna var Lúka Kostic, fyrrum þjálfari U-21 landsliðsins. Haraldi Björnssyni tókst meira að segja að gera það og hafa nafn hans í eðlilegu samhengi. „Að þessu hefur maður verið að vinna lengi. Við komumst ekki svona langt þegar við vorum hjá Luka [Kostic] en núna hefur allt gengið upp,“ sagði Haraldur. Fimmti og síðasti viðmælandi minn klikkaði þó á þessu. Öllu verra er að þarna var á ferð sjálfur landsliðfyrirliðinn og einn aðalmannanna í sektarnefnd landsliðsins. Blaðamaður var vitaskuld löngu búinn að átta sig á hvernig í pottinn væri búið og benti Bjarna á yfirsjónina. „Nei, ég trúi þessu ekki,“ sagði fyrirliðinn þá og gróf andlitið í lúkurnar. Sektir eins og þessar eru þekktar í íþróttaliðum og menn eru vitaskuld sektaðir fyrir annað en framkomu í fjölmiðlum. En nú verða ný nöfn eða önnur orð fundin fyrir okkur fjölmiðlamennina og þessum þremur knattspyrnuhetjum fyrrum Júgóslavíu á Íslandi þökkuð góð störf.
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Fleiri fréttir Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ Sjá meira