140.000 manns kíkja í „heimsókn“ á viku 24. desember 2011 07:00 Hér er unnið að uppsetningu vefmyndavélar á Fimmvörðuhálsi. Vélinni var beint að gígum sem seinna fengu nöfnin Magni og Móði. Eyjafjallajökull hamast í baksýn. Ólafur Sveinsson, starfsmaður Mílu, er við vinnu sína. mynd/Jóhannes K. Sólmundsson
Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur hlotið eftirsótt verðlaun fyrir vefmyndavél sína við Jökulsárlón. Fjórar milljónir manna „heimsækja“ Ísland á ári í gegnum veggátt Mílu. Frelsisstyttan í New York og Everest-fjall eru meðal vinningshafa. Vefmyndavél fjarskiptafyrirtækisins Mílu við Jökulsárlón hefur verið valin ein af 25 merkilegustu vefmyndavélunum árið 2011 af EarthCam, langstærsta fyrirtæki heims sem helgar sig beinum útsendingum á netinu. Á hverju ári „heimsækja“ hundruð þúsunda manna Ísland í gegnum myndavélarnar, sem eru tólf talsins. Þetta er í þrettánda skipti sem EarthCam gefur út listann og eru sigurvegarar valdir úr þúsundum tilnefninga. Áþekkar vefmyndavélar skipta milljónum. Tilnefningarnar grundvallast á þremur þáttum; gæðum mynda, sérstöðu og alhliða tæknilegri getu. Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri markaðsstýringar Mílu, segir verðlaunin skemmtilega viðurkenningu og sýna vel hversu mikla athygli vélarnar hafi vakið bæði á Íslandi og ekki síst erlendis. Vefmyndavélarnar eru nú tólf talsins og þær tvær nýjustu eru á Akureyri og vél sem sýnir gamlárskvöld frá Vatnsenda í Reykjavík. „Við verðum með beina útsendingu frá áramótunum og flugeldunum í Reykjavík eins og í fyrra og það gæti því orðið ansi mikil traffík á síðuna þegar nýtt ár gengur í garð.“ Á venjulegum degi sýna tölur að heimsóknir á heimasíðu Mílu eru á bilinu 14 til 20 þúsund og yfir mánuðinn eru heimsóknirnar því um 350 þúsund alls. Að sögn Sigurrósar hófst vefmyndavélaverkefnið með eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. „Þá fóru okkar menn af stað og settu upp vél á Hvolsvelli strax í upphafi goss. Svo erum við með vélar sem beinast bæði að Heklu og Kötlu, ef ske kynni að einhverjar hræringar hæfust þar. Aðrir staðir eru helstu ferðamannastaðir landsins sem falla í góðan jarðveg hjá útlendingum.“ Míla er í fríðum flokki verðlaunahafa hjá EarthCam. Þeirra á meðal eru vélar sem sýna eldinn í kyndli frelsisstyttunnar í New York, Everest, hæsta fjall heims, Fukushima-kjarnorkuverið í Japan sem fór illa í flóðbylgju eftir jarðskjálfta fyrr á árinu. Eins er vefmyndavélin í alþjóðlegu geimrannsóknastöðinni meðal vinningshafa. Sigurrós segir að daglega berist tölvupóstur frá notendum vélanna. Margir eru að þakka fyrir sig en aðrir að benda á ef sendingar liggja niðri. Sjá: live.mila.is svavar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira