Afgreiðsla Flugmálastjórnar Íslands á flugréttindum raskar samkeppni 7. febrúar 2011 15:56 Myndin er úr safni.
Samkeppniseftirlitið hefur í ákvörðun sem birt er í dag komist að þeirri niðurstöðu að afgreiðsla Flugmálastjórnar Íslands á flugréttindum hér á landi raski samkeppni í áætlunarflugi til og frá landinu samkvæmt tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Skilyrði nýlegrar ákvörðunar Flugmálastjórnar um leyfi til Astraeus, sem er flugrekstraraðili Iceland Express, hefðu að óbreyttu komið í veg fyrir að félagið gæti boðið upp á áætlunarflug milli Keflavíkur og Winnipeg í Kanada næsta sumar. Hefur Samkeppniseftirlitið því beint bindandi fyrirmælum til Flugmálastjórnar um að breyta verklagi sínu við veitingu flugréttinda með það að markmiði að auka samkeppni í flugi til og frá Íslandi. Tildrög málsins eru þau að Iceland Express hyggst bjóða í sumar upp á áætlunarflug milli London og Winnipeg í Kanada með viðkomu í Keflavík. Þar sem Astraeus er breskur flugrekandi hefur það félag leyfi til að fljúga til Kanada á grundvelli loftferðasamnings milli Kanada og ríkja Evrópusambandsins. Sambærilegur loftferðasamningur hefur hins vegar ekki verið gerður milli Kanada og Íslands sem veldur því að Astraeus þarf leyfi flugmálayfirvalda hér á landi til að fljúga þann hluta flugsins sem er á milli Keflavíkur og Winnipeg. Í nóvember sl. sótti Astraeus um leyfi til að fljúga umrætt áætlunarflug. Ákvörðun Flugmálastjórnar um leyfi var hins vegar bundin því skilyrði að Iceland Express og Astraeus myndu afla sambærilegra flugréttinda fyrir íslenska flugrekendur í Kanada hjá þarlendum flugmálayfirvöldum. Hefur Flugmálastjórn haldið því fram að þetta sé í samræmi við vinnureglur stofnunarinnar og hagsmuni íslenskra flugrekenda. Iceland Express/Astraeus hafa hins vegar bent á það sé ekki hlutverk eða mögulegt fyrir einkafyrirtæki að gera loftferðasamninga við erlend stjórnvöld og það sé ólögmætt að Flugmálastjórn krefjist þess að fyrirtækin standi í slíkri hagsmunagæslu fyrir keppinauta sína. Telja Iceland Express/Astraeus að þetta skilyrði jafngildi neitun á því að fá að stunda umrætt flug. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er komist að þeirri niðurstöðu að skilyrðin styðjist ekki við heimild í lögum og hafi skaðleg áhrif á samkeppni. Á það sérstaklega við í þessu máli þar sem ákvörðun Flugmálastjórnar hindrar Iceland Express sem er helsti keppinautur Icelandair í áætlunarflugi til og frá Íslandi að efla starfsemi sína og fjölga áfangastöðum. Er því nauðsynlegt að Flugmálastjórn breyti verklagi sínu með það að markmiði að efla virka samkeppni til að nýir eða minni keppinautar geti með sem minnstum takmörkunum hafið flug til og frá Íslandi og aukið samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur. Flugmálastjórn batt leyfi Iceland Express til flugs á sömu leið síðasta sumar sambærilegum skilyrðum, en samgönguráðuneytið greip þá inn í og heimilaði flugið án skilyrða. Við vinnslu umsóknar Iceland Express þá sendi Flugmálastjórn hana til umsagnar hjá íslenskum flugmálayfirvöldum, þar á meðal Icelandair. Þannig upplýsti Flugmálastjórn helsta keppinaut Iceland Express um samkeppnisáform félagsins. Flugmálastjórn hugðist hafa sama háttinn á við meðferð umsóknarinnar nú, en féll frá því í kjölfar athugasemda Samkeppniseftirlitsins. Vegna framangreinds beinir Samkeppniseftirlitið eftirfarandi bindandi fyrirmælum til Flugmálastjórnar: Að Flugmálastjórn felli úr gildi það skilyrði fyrir veitingu á flugréttindum hér á landi til erlendra flugrekenda að þeir afli sambærilegra réttinda fyrir íslenska flugrekendur. Að Flugmálastjórn geri það ekki að skilyrði fyrir flugréttindum til erlendra flugrekenda hér á landi að sömu réttindi fáist fyrir íslenska flugrekendur í því ríki sem flogið er til frá Íslandi. Að það verði ekki gert að skilyrði að erlendir flugrekendur afli slíkra flugréttinda fyrir íslenska flugrekendur. Að Flugmálastjórn upplýsi ekki flugrekendur hér á landi um samkeppnisáform annarra flugrekenda, íslenskra eða erlenda
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Umhleypingar næstu daga Veður Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira