Fyrrverandi slökkviliðsstjóri kærður fyrir brot í starfi Símon Birgisson skrifar 22. ágúst 2011 12:11
Fyrrverandi slökkviliðsstjóri Austur- Húnavatnssýslu hefur verið kærður fyrir brot í starfi. Lögreglan rannsakar málið en slökkviliðsstjórinn fyrrverandi telur brotið á sér og krefst vangoldinna launa. Fyrrverandi slökkviliðsstjóri Austur- Húnavatnssýslu hefur verið kærður fyrir brot í starfi. Lögreglan rannsakar málið en slökkviliðsstjórinn fyrrverandi telur brotið á sér og krefst vangoldinna launa. Jóhann Kristinn Jóhannsson var ráðinn til starfa í febrúar á síðasta ári og starfaði í hjá brunavörnum Austur húnavatnssýslu fram í maí á þessu ári. Um tuttugu slökkviliðsmenn starfa hjá brunavörnum en Jóhann var eini fastráðni starfsmaðurinn á launum. Honum var var vikið frá störfum eftir að upp kom grunur um að hann hefði misnotað stöðu sína með því að nota bensínkort stöðvarinnar til eigin þarfa. Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, formaður stjórnar brunavarna, segir að slökkviliðsstjórinn fyrrverandi sé kominn með lögfræðing í málið og hafi sent stöðinni kröfu um vangoldin laun og fleira. Þeirri kröfu hafi verið svarað - að mati þeirra sem nú fara með stjórn brunavarna Austur Húnavatnssýslu ber ekki að borga manni, grunuðum um brot í starfi, uppsagnarfrest. Jón Aðalsteinn tekur þó fram að brot Jóhanns séu enn meint brot. Þau hafi ekki verið sönnuð. En þeir telji málið klippt og skorið. Reikningar sýni fram á það. Lögreglan á Blönduósi fer með rannsókn málsins. Þar var Kristján Þorbjörnsson, lögreglumaður, til svara. Hann sagði frumrannsókn lokið og nú væri beðið eftir svörum frá slökkviliðsstjóranum fyrrverandi.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira