Vilja kjarasamninga klára í lok vikunnar 28. mars 2011 00:00 Gylfi Arnbjörnsson. „
Við stefnum að því að ljúka gerð kjarasamninga í næstu viku. Þess vegna er orðið mjög brýnt að það fari að sjást í ákvarðanir frá stjórnvöldum,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, tekur undir með Gylfa hvað snertir aðkomu stjórnvalda. Báðir nefna þeir þar fyrst aðgerðir og fjárfestingar í atvinnumálum. Einnig breytingar á lífeyrissjóðakerfi opinberra starfsmanna. „Tryggingafræðilegur halli á lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna var um fimm hundruð milljarðar króna í árslok 2009. Og þetta gat er alltaf að stækka. Við viljum sjá því lokað,“ segir Vilhjálmur. SA hefur boðið launahækkun upp á 7 til 8 prósent á þremur árum. „Við höfum algerlega hafnað því. Að sama skapi er alveg ljóst að svigrúmið til mikilla breytinga er þröngt,“ segir Gylfi. „Atvinnurekendur hafa viljað fá meiri vissu fyrir auknum framkvæmdum og umsvifum í hagkerfinu. Eina leiðin sem þeir hafa til að borga reikninginn er að auka umsvifin.“ Spurður um launahækkanir segir Vilhjálmur ekki standa til að gera verðbólgusamninga. „Eftir því sem tölurnar eru lægri, þess líklegra er að við séum að tala um kaupmáttaraukningu,“ segir hann. Samkomulag er um að launahækkanir sem um semst gildi afturvirkt frá 1. mars. Gylfi segir að greidd verði eingreiðsla sem nemi launahækkuninni fyrir mars, apríl og maí. „Samningurinn öðlast ekki gildi fyrr en um miðjan júní og þá að undangengnu því að Alþingi og stjórnvöld séu búin að efna það sem að þeim snýr. Það hefur verið ljóst að erfiðasti hjalli þessara viðræðna væri með hvaða hætti aðkoma stjórnvalda yrði,“ segir hann. Vilhjálmur segir að nú verði hert á vinnunni. „Markmiðið núna er að klára þetta fyrir næstu helgi. Sumt er að ganga, annað gengur hægar og sumt hreyfist ekki,“ segir hann. Af hálfu SA hefur verið sett fram krafa fyrir gerð kjarasamnings að samtökin fái aðkomu að gerð væntanlegs frumvarps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Gylfi segir sjómenn og landverkafólk innan ASÍ einnig gera kröfu um að fá að koma að mótun sjávarútvegsstefnunnar þótt SA og ASÍ séu sammála um fátt í þessum efnum. „Þessi mál eru ekki að hreyfast og við getum ekki unað því,“ segir Vilhjálmur, sem játar því að strandað geti á fiskveiðistjórnunarmálinu. „Það er alveg eins líklegt,“ svarar framkvæmdastjóri SA. gar@frettabladid.is
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira