Ráðherrar skyldaðir til að ganga í takt 28. mars 2011 04:00 Nöfnurnar og ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir og Júlíusdóttir stinga saman nefjum. fréttablaðið/anton
Óánægju gætir í ráðherraliði VG með nýtt frumvarp til breytinga á lögum um Stjórnarráðið. Frumvarpið var kynnt og samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag. Eftir því sem næst verður komist lýstu tveir ráðherrar VG andstöðu við frumvarpið; Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Jón mun hafa bókað andstöðu sína en Ögmundur samþykkt málið með fyrirvara. Frumvarpið veitir meðal annars stjórnvöldum á hverjum tíma heimild til að skipuleggja Stjórnarráðið. Í gildandi lögum eru ráðuneytin talin upp en frumvarpið gerir ráð fyrir að aðeins verði kveðið á um hámarksfjölda ráðuneyta í lögunum. Stjórnvöld ákveði hvaða ráðuneyti skuli starfrækt. Efla ber samhæfingu starfa milli ráðherra. Í þeim tilgangi er í frumvarpinu kveðið á um skyldu ráðherra til að leitast við að samhæfa stefnu sína og aðgerðir þegar málefni og málefnasvið skarast og auk þess kveðið sérstaklega á um skyldu forsætisráðherra til að hafa frumkvæði að samhæfingu starfa ef á þarf að halda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það einkum þetta sem fer fyrir brjóstið á gagnrýnendum í VG. Líta þeir svo á að með þessu ákvæði og þessum anda sé í raun verið að skylda hvern og einn ráðherra í ríkisstjórn Íslands til að fara í einu og öllu að vilja forsætisráðherra. Við bætist að ætlunin er að veita forsætisráðherra vald til að ákveða skiptingu starfa milli ráðherra. Er í þeim efnum einkum horft til áforma um stofnun atvinnuvegaráðuneytis en það hefur verið eitt af hjartans málum Samfylkingarinnar en mætt andstöðu innan VG. Er kveðið á um þá breytingu í stjórnarsáttmálanum. Verði frumvarpið að lögum þarf ekki sérstaka lagabreytingu til að koma atvinnuvegaráðuneytinu á fót; aðeins ákvörðun forsætisráðherra og samþykki ríkisstjórnarinnar. Í frumvarpinu er einnig lagt til að ráðherrar fái að ráða sér sérstakan ráðgjafa án auglýsingar, með sama hætti og þeir fá nú að ráða sér aðstoðarmenn. Frumvarpið er byggt á niðurstöðum og tillögum sem settar voru fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, tillögum starfshóps sem forsætisráðherra skipaði um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndarinnar, skýrslu þingmannanefndar sem fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar og tillögum nefndar um endurskoðun á lögum um Stjórnarráðið. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Sjá meira